Hertogahjónin Harry Bretaprins og Meghan Markle hafa ákveðið að flytja aftur til Bretlands. Eftir að fréttir bárust af fyrirhuguðum flutningum hjónanna fór sú saga á kreik að Meghan ætlaði sér aftur að snúa sér að leiklistinni og að hún hefði verið ráðin í þættina The Gentlemen úr smiðju leikstjórans Guy Ritchie. Það var Deadline sem greindi frá þessum tíðindum þann 21. ágúst en aðeins degi síðar var sagt að tilboðið til Meghan hefði verið afturkallað í kjölfar gagnrýni.
Flutningar hertogahjónanna setja allt á hliðina og sögusagnir eru farnar á kreik