Fjallað var um málið í kvöldfréttum Sýnar en rannsókn á Hvassahrauni sem framtíðarflugvallarstæði hófst fyrir alvöru árið 2019 með samkomulagi ríkis og borgar.
Ýmsar útfærslur af flugvelli hafa verið teiknaðar í gegnum tíðina, allt frá innanlandsvelli upp í stóran millilandavöll.
Það var svo haustið 2024 sem Svandís Svavarsdóttir, þáverandi innviðaráðherra, og Einar Þorsteinsson, þáverandi borgarstjóri, kynntu þá niðurstöðu starfshóps að svæðið hentaði veðurfarslega og að hætta vegna hraunflæðis væri talin lítil. Bæði Svandís og Einar sögðust hallast að því að halda ætti rannsóknum á Hvassahrauni áfram.
Í skýrslu Veðurstofunnar, sem fylgdi með Hvassahraunsskýrslunni, voru samt taldar líkur á hraunrennsli inn á hið afmarkaða flugvallarstæði. Þær voru þó sagðar litlar, einkum ef lítill völlur yrði gerður.
Í síðustu viku kom ný og ítarlegri skýrsla frá Veðurstofunni um eldgosavá á Reykjanesskaga. Þótt Hvassahraun sé ekki sérstaklega tekið fyrir sést engu að síður á kortum að dekkstu litirnir, sem tákna mestu líkurnar á hraunflæði miðað við meðalstórt hraun, ná inn á það svæði sem afmarkað hefur verið undir flugvöll.
Einnig sést á korti yfir líkur á gosupptökum, táknaðar með mismunandi grænum lit, að eldgos er talið geta opnast innan svæðisins, þótt þær líkur séu metnar litlar.
Við spurðum Hildigunni H. H. Thorsteinsson veðurstofustjóra um Hvassahraun í síðustu viku.
-Segið þið eitthvað um það hvort það eigi að reisa flugvöll í Hvassahrauni?
„Við segjum ekkert um hvað eigi að gera. Okkar hlutverk er að benda á hættuna. Til þess að það sé hægt að taka nákvæmlega svona umræðu,“ svaraði Hildigunnur hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Hvassahraunsstarfshópurinn lauk störfum eftir skýrslukynninguna fyrir einu og hálfu ári.
Síðan gerðist það að í innviðaráðuneytið settist Eyjólfur Ármannsson sem lýsti því yfir við kynningu samgönguáætlunar fyrir jól að Reykjavíkurflugvöllur yrði festur í sessi og flugstöð reist. Við sama tilefni lýsti Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra því yfir að ekki mætti láta flugvöllinn grotna niður á meðan aðrir kostir væru ekki í stöðunni.
Miðað við stefnu borgarstjórnar Reykjavíkur þarf flugstarfsemin í Vatnsmýri að vera komin á nýjan stað eftir sex ár því gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir að Reykjavíkurflugvelli verði lokað árið 2032.