Lögreglan á Suðurlandi fékk tilkynningu um flugslys sunnan Mýrdalsjökuls um klukkan ellefu í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru kallaðar út til að aðstoða við leit og björgun.
Einum manni á svifvæng hafði hlekkst þar á og hann orðið viðskila við samferðamenn, segir í tilkynningu lögreglu.
Björgunaraðgerðir standa yfir en frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Fréttin verður uppfærð.