Flugmaður hjá EasyJet féll í yfirlið skömmu fyrir lendingu á Keflavíkurflugvelli um áttaleytið í morgun. Rauðu óvissuástandi var lýst yfir þegar atvikið átti sér stað.
Hinn flugmaður farþegaþotunnar, sem var á leið til Íslands frá Edinborg í Skotlandi, lenti henni aftur á móti án vandræða.
Andri Ómarsson, staðgengill upplýsingafulltrúa Isavia, greinir frá þessu í samtali við mbl.is.
Hann segir flugmanninn hafa vaknað aftur um það leyti sem vélin lenti. Alls voru 168 farþegar í flugvélinni og sex í áhöfn.
Sjúkrabíll var kallaður á staðinn en ekki reyndist þörf á því að flytja manninn á sjúkrahús, að sögn Brunavarna Suðurnesja.