Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri Örtækni ehf. og fyrrum sveitarstjórnarmaður í Kópavogi hefur sett einbýlishús sitt við Kópavogsbakka á sölu.
Smartland greindi frá.
Húsið er á einni hæð, 265 fm, þar af bílskúr 29,8 fm, byggt árið 2008.

Húsið skiptist í stofu, borðstofu og eldhús í opnu rými, sjónvarpsherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi, fjögur barnaherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr með geymslu. Engar myndir eru af húsinu að innanverðu í fasteignaauglýsingu.
Frekari upplýsingar um eignina má finna hér.