Flokkur fólksins „safnar vopnum“ eftir vonbrigði í borginni

Flokkur fólksins „safnar vopnum“ eftir vonbrigði í borginni

Flokkur fólksins „safnar vopnum“ eftir vonbrigði í borginni

Kristján Þór Kristjánsson, oddviti Framsóknar og óháðra, og Gylfi Ólafsson, oddviti Viðreisnar, hófu í dag formlegar viðræður um meirihlutasamstarf á Ísafirði. Frá þessu greindu þeir fyrir skömmu á Facebook:

Framsókn fékk bestu kosninguna í Ísafjarðarbæ og fjóra kjörna fulltrúa. Viðreisn náði aðeins oddvitanum inn, en með því ná flokkarnir tveir fimm manna meirihluta í sveitarstjórn.

Viðræðurnar segja oddvitarnir að standi væntanlega fram yfir helgi. Þeir Kristján og Gylfi þekkjast vel eftir að hafa unnið saman í sveitarstjórn undanfarin fjögur ár.

Kristján sagði í viðtali við BB.is að ekki hefði enn verið rætt um bæjarstjórastólinn, það yrði gert að loknum viðræðum um önnur mál.

Pétur Marteinsson var „settur í stöðu forystumanns Samfylkingarinnar í borginni sem flokksforystan á landsvísu hefur verið í stjórnarandstöðu gegn,“ segir Gauti B. Eggertsson, hagfræðiprófessor og bróðir Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóra.

Hann birti færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann segir borgarstjórnarflokkinn hafa haldið lífi í Samfylkingunni síðustu 10 til 15 ár. Hópur örfárra flokksmanna hafi gleymt því.

„Og vinirnir veltu úr stalli eigin borgarstjóra. Í kjölfarið uppskáru þau versta fylgi í sögu flokksins í borginni. En mæta nú ábúðarfull í umræðuþætti og tala um valdþreytu og það þurfi að byggja upp “traust”. Kannanir sýndu að það var bara í fínu lagi í Janúar og Febrúar.“

Magnús Stefánsson lætur af störfum sem bæjarstjóri eftir 14 ára starfstíma, fyrst hjá Sveitarfélaginu Garði og síðar Suðurnesjabæ. Ráðningartíma hans lýkur um mánaðamótin. Víkurfréttir greindu fyrst frá.

„Framundan eru spennandi en jafnframt krefjandi verkefni sem bíða úrlausnar og vonandi gengur sem allra best að vinna úr þeim í þágu samfélagsins,“ sagði Magnús í færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann óskaði bæjarfulltrúum til hamingju með kjörið.

Samfylkingin bætti við sig einum fulltrúa í kosningunum á laugardag og er þá með þrjá meðan Sjálfstæðismenn misstu einn. Framsókn hélt sínum tveimur og Miðflokkurinn náði inn tveimur fulltrúum í Suðurnesjabæ.

Oddvitar L-listans, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar halda spilunum þéttar að sér nú en dagana tvo á undan - og hafa ýmist beðist undan því að tala við fréttamenn eftir hádegi eða sagt engin tíðindi af viðræðum.

Oddvitarnir hafa verið brattir fram að þessu og Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-listans, talað um að mikið þurfi út á að bregða til þess að flokkarnir nái ekki saman.

Í gær ræddu þau við flokksmenn sína um stöðu viðræðna, svo þær virðast komnar þó nokkuð áleiðis.

Í Hveragerðisbæ eru oddvitar fjögurra flokka allir að ræða hver við annan og engar formlegar viðræður hafnar. Þetta sagði Ingimar Guðmundsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Hveragerði, í spjalli nú rétt í þessu.

Staðan í þeirra sveitarfélagi sé þannig að ýmsir meirihlutar séu mögulegir, en Sjálfstæðisflokkurinn fékk þó bestu kosninguna þar, eða tæp 44% atkvæða.

„Það er stutt í að viðræður geti hafist formlega, við færumst nær,“ segir Ingimar. Þau vonast til að formlegar viðræður gætu hafist fyrir helgina.

Fátt er að frétta af myndun nýs meirihluta í borgarstjórn í Reykjavík. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, hyggst nýta daginn í dag til að ræða við sitt fólk áður en næstu skref verða tekin.

Hildur ræddi í gær við alla oddvita þeirra flokka sem fengu kjörna fulltrúa heldur spilunum mjög þétt að sér.

Hún hefur sagt að hana langi til að klára að mynda nýjan meirihluta fyrir 3. júní en þá er borgarstjórnarfundur, svo það eru um það bil tvær vikur.

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins sagði fréttastofu í morgun að það væri ekkert nýtt að frétta síðan í gær. Hann sagðist bara bíða rólegur eftir samtali frá Hildi varðandi framhaldið.

María Sigrún Hilmarsdóttir hefur legið í símanum í dag og reynt að ná tali af oddvitum. Hún fór yfir stöðuna í hádegisfréttum.

Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík, segir úrslit kosninganna hafa verið vonbrigði. Flokkurinn fékk 3,3% fylgi í kosningunum á laugardag og þurrkaðist út úr borgarstjórn.

„Það er auðvitað áhyggjuefni þegar rödd sem talað hefur sterkast fyrir málefnum eldri borgara, öryrkja og fólks sem stendur höllum fæti heyrist ekki lengur í borgarstjórn,“ segir í færslu Guðmundar Inga á Facebook.

„Þessi úrslit kalla á að við söfnum vopnum okkar, förum strax í að efla grasrótina, styrkja ungliðastarf og tryggja að flokkurinn verði með öflugt framboð um allt land. Baráttan heldur áfram.“

Alls greiddu 54,95% kosningabærra borgarbúa atkvæði í kjördeildum víðs vegar í Reykjavík á laugardag, 3,7% meira en í síðustu sveitarstjórnarkosningum 2022.

Kjörsókn var mest 67,17% í Fossvogsskóla og minnst 40,58% í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Hún jókst mest í Rimaskóla milli sveitarstjórnarkosninga, eða um 7,35%, en dróst saman um 2,4% í Hagaskóla.

Þegar litið var til einstakra hverfa jókst hún einna mest í Grafarvogi og Grafarholti. Auk Rimaskóla var einnig 5,31% aukning í Foldaskóla og 6,03% aukning í Borgarskóla.

Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins ræða áframhaldandi samstarf í Múlaþingi. Staða núverandi meirihluta sveitarstjórnar í Múlaþingi styrktist í sveitarstjórnarkosningum á laugardag.

Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig einum fulltrúa og er því með fjóra á meðan Framsókn hélt sínum þremur.

Viðræður ganga vel, segir Berglind Harpa Svavarsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins. Hún fundar þessa dagana með Jónínu Brynjólfsdóttur, oddvita Framsóknar.

Þær stefna á að vera komnar með meirihluta innan næstu tíu daga.

„Sem keppnismaður varð maður náttúrulega bara fúll svona strax á eftir, en svona raunhæft að líta á þetta og sætta sig við niðurstöðuna, þá er maður bara kominn núna í gírinn að undirbúa sig undir að vera með gott aðhald í minnihluta,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Samfylkingin hafi bætt við sig fulltrúum á landsvísu og sé því í sterkri stöðu.

„Í Reykjavík höldum við okkar fimm borgarfulltrúum, sem hefur ekki verið trendið síðustu kosningar, við höfum venjulega verið að missa alltaf einn. Miðað við kjörtímabilið sem er að ljúka og kosningabaráttuna, það sem ég fann alveg að það væri brekka og mótvindur, þá held ég að við getum bara vel við unað.“

„Hins vegar var maður með önnur markmið. Markmiðið var að fá inn sjött og jafnvel sjöunda borgarfulltrúann en það gekk ekki upp,“ segir Pétur.

Hann telur líklegast að Sjálfstæðisflokkurinn myndi meirihluta með Miðflokknum..

„Það er síðan náttúrulega möguleiki, ef þetta gengur ekki upp, að það verði bankað hérna hjá mér og við förum að ræða einhvern meirihluta milli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. En ég held að það sé býsna langt í það.“

Á Hornafirði er samstarf Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í sjónmáli.

Þar var Framsóknarflokkurinn hlutskarpastur í nýliðnum kosningum, með rétt tæp 45% atkvæða. Oddviti þeirra, Hjalti Þór Vignisson, segir formlegar viðræður hafnar um meirihlutasamstarf við Sjálfstæðisflokkinn.

Síðustu ár hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið þar í meirihluta ásamt Kex-framboðinu. Kex-framboðið fékk aftur á móti ekki góða kosningu í þetta sinn og missti um helming síns fylgis og annan tveggja fulltrúa í sveitarstjórn.

„Samtalið hefur gengið prýðilega,“ segir Hjalti og bætir við að hann sé bjartsýnn á framhaldið. Þau eiga fund í dag klukkan 16 og þá verða línurnar lagðar um framhaldið.

Hjalti á ekki von á því að meirihluti verði myndaður fyrir helgina; „Við viljum vanda okkur.“

Góðan dag, Ólöf Rún Erlendsdóttir situr hér við lyklaborðið, fréttamaður á Akureyri. Ég verð límd við símann og tölvuna í dag og ætla að tryggja ykkur nýjustu tíðindi af meirihluta viðræðum á landsbyggðinni.

Endilega komið til okkar ábendingum um stöðu mála í ykkar heimabyggðum: frettir@ruv.is.

Tíðindin frá Akureyri eru þessi:

Oddvitar Sjálfstæðisflokks, L-listans og Framsóknarflokks, áttu fund um myndun meirihluta í morgun. Þau hófu viðræður strax daginn eftir kosningar og segja oddvitar það samtal ganga vel. Að öðru leyti gefur þríeykið lítið upp, annað en að viðræðum verði haldið áfram.

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn í Fjarðabyggð tilkynntu í gær að þeir hefðu ákveðið að hefja formlegar meirihlutaviðræður um áframhaldandi samstarf flokkanna á komandi kjörtímabili.

Meirihluti flokkanna hélt í kosningunum. Þó að hvor flokkur hafi misst einn fulltrúa geta þeir myndað meirihluta með fimm fulltrúum af níu.

Samfylkingin fékk tvö sæti og Miðflokkurinn tvö.

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, er með öll spil á hendi fyrir meirihlutaviðræður. Hún fundaði með öðrum oddvitum í gær en heldur spilunum þétt að sér.

Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig þremur fulltrúum í Reykjavík og er því með níu. Þrír flokkar hafa verið orðaðir við meirihluta með Sjálfstæðisflokki, Miðflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Viðreisn.

Sjálfstæðisflokkurinn á mesta samleið með Framsóknarflokki, samkvæmt greiningu á svörum oddvita í kosningaprófi RÚV.

Hér má sjá greiningu á málefnalegri samleið flokkanna í Reykjavík.

Einar Þorsteinsson er eini fulltrúi Framsóknar, sem missti þrjá fulltrúa, Miðflokkurinn fékk þrjá og Viðreisn bætir við sig einum og er þá með tvo.

Samfylkingin heldur sínum fimm sætum, Vinstrið fékk tvo fulltrúa og Sósíalistaflokkur Íslands missti einn.

Tveir flokkar þurrkuðust út úr borgarstjórn, Píratar og Flokkur fólksins.

Áhugaverð staða er að teiknast upp í Norðurþingi þar sem fjórir flokkar, sumir nokkuð ólíkir, funda í dag og freista þess að mynda meirihluta.

Níu fulltrúar sitja í sveitarstjórn Norðurþings og voru Sjálfstæðismenn og Framsókn í meirihluta. Hvor þeirra er með tvo fulltrúa eftir að Framsókn missti einn í nýafstöðnum kosningum. Þeir funda með oddvita Samfylkingarinnar, sem bætti við sig fulltrúa, og Óskalistans.

Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir flokkana funda um hlutverkaskiptingu í dag. Takist það sé hún nokkuð örugg um að þeir nái saman um málefnin.

Þá yrðu aðeins fulltrúi Miðflokksins og fulltrúi Vinstri grænna í minnihluta í Norðurþingi.

Oddvitar framboða funda víða um landið og freista þess að ná saman um meirihluta í sveitarstjórnum á nýju kjörtímabili. Við ætlum að fylgjast með framvindunni og taka púlsinn á sveitarstjórnarmyndun um allt land.

Velkomin á lifandi fréttavakt þar sem við fylgjumst með vendingum í kjölfar sveitarstjórnarkosninga.

#eftir #flokkur #fólksins #safnar #vopnum


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-19-flokkur-folksins-safnar-vopnum-eftir-vonbrigdi-i-borginni-475883

📰 Aðrar fréttir

Motorcyclist dies after crash on TF-1 in South Tenerife
📅 25.07.2026 👁️ 0
Motorcyclist dies after crash on TF-1 in South Tenerife
A 62-year-old motorcyclist has died after losing control of his bike and leaving the road on the TF-1 motorway in Costa Adeje, south Tenerife, earlier...
Snarpar vindkviður á Aust­fjörðum og sunnan við Vatna­jökul - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Snarpar vindkviður á Aust­fjörðum og sunnan við Vatna­jökul - Vísir
Þetta segir í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Vindurinn geti reynst varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Vindkort fyrir kl. 2...
Dharmendra Pradhan, CJP: India's 'cockroach' protest called off after education minister quits
📅 25.07.2026 👁️ 0
Dharmendra Pradhan, CJP: India's 'cockroach' protest called off after education minister quits
The CJP protest has been the most visible expression of public anger against PM Narendra Modi's government in recent years.
„Vindorkunýting verður hér eins og annars staðar stoðin í grænni framtíð Íslands“
📅 25.07.2026 👁️ 0
„Vindorkunýting verður hér eins og annars staðar stoðin í grænni framtíð Íslands“
Það er þrenging frá því sem áður var að öll áform um vindmyllur yfir 30 metra hæð þurfi að fara gegnum rammaáætlun, segir forstjóri Samorku. Það liggi...
Tveir látnir eftir að flugvél lenti á húsþaki
📅 25.07.2026 👁️ 0
Tveir látnir eftir að flugvél lenti á húsþaki
Tveir eru látnir eftir að lítil flugvél hrapaði á húsþak á einbýlishúsi í Þýskalandi klukkan 11 í morgun. Þeir voru báðir farþegar í vélinni.Slysið va...
Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana - Vísir
Frá þessu greinir hann í Facebook-færslu þar sem hann rekur mál sitt nokkuð ítarlega. Í færslu sinni, sem er nokkuð ítarleg, segir Jón Viðar að hann h...
More than 250,000 evacuated as wildfires rage in France and Spain
📅 25.07.2026 👁️ 0
More than 250,000 evacuated as wildfires rage in France and Spain
Spain's PM warns of "complex hours" ahead as authorities in France say they are far from bringing blazes burning near Bordeaux under control.
Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana - Vísir
Þetta staðfestir Einar Sigurjónsson aðalsvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við fréttastofu. „Þarna var í rauninni bara bráðaveikindati...
Þyrlan kölluð út vegna veikinda á Suðurlandi
📅 25.07.2026 👁️ 0
Þyrlan kölluð út vegna veikinda á Suðurlandi
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á Suðurlandi rétt fyrir klukkan 15 til að sinna sjúkraflugi. Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðast...
Kviknaði í bíl fyrir ofan Kambana
📅 25.07.2026 👁️ 0
Kviknaði í bíl fyrir ofan Kambana
Slökkvilið var kallað út vegna bíls sem stóð í ljósum logum á Hellisheiði á fjórða tímanum í dag. Búið er að slökkva eldinn.Þetta staðfestir Halldór Á...
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
Þetta segir Áskell Harðarson sem flúði heimilið sem hann dvaldi í ásamt fjölskyldu sinni í úthverfi Bordeaux-borgar vegna gróðurelda sem nálguðust. Al...
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
📅 25.07.2026 👁️ 1
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
Britain Means Business, owned by the party’s deputy leader Richard Tice, made two donations of £250,000 in the run-up to the 2024 general election.
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
📅 25.07.2026 👁️ 1
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
Nethy Bridge residents were evacuated on Friday and a major incident was declared.
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
Landamæraeftirlit með farþegum sem koma utan Schengen-svæðisins getur tekið allt að sex sinnum lengri tíma en áður. Viðbótarfjármagn og aukamannskapur...
Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara
📅 25.07.2026 👁️ 0
Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara
Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara Bono fannst laus í hverfinuHvetur hundaeigendur til fyllstu varkárni eftir alvarlegt atvik í gær Mynd:...
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
Minnst einn lést þegar lítil flugvél hafnaði á húsþaki heimilis í Ganderkesee í norðurhluta Þýskalands í dag.
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
25 ára laganemi hefur verið ákærður í tengslum við sprengju sem fannst nærri landamærum Norður-Írlands og Írlands á miðvikudag. Maður á fimmtugsaldri ...
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
Þetta segir skurðhjúkrunarfræðingur sem starfar í Noregi en er nú stödd í Alcorcón á Spáni þar sem systir eiginmanns hennar býr en það er í um tuttugu...
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
Æði margir afturhaldsseggirnir eru með böggum hildar að afloknu heimsmeistaramótinu í knattspyrnu út af fjölda þeldökkra fótboltasnillinga sem léku li...
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
📅 25.07.2026 👁️ 1
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar Fyr­ir rétt­um 400 ár­um keyptu nið­ur­lensk­ir kaup­menn sér eyju. Þau kaup áttu eft­ir að draga dilk á eft­ir s...
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
Um þriðjungur foreldra sem hafa misst samband við fullorðin börn sín telur að meðferðaraðili barnsins hafi haft áhrif á ákvörðun þess um að slíta sams...
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
Reglugerð Evrópusambandsins sem heimilar tæknifyrirtækjum að skanna einkaskilaboð í leit að barnaníðsefni hefur verið samþykkt í sameiginlegu EES-nefn...
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“ - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“ - Vísir
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuverk, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandarí...
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
Guðrún Gunnlaugsdóttir hefur starfað sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur hjá Landspítalanum í áratugi og skrifaði á dögunum skoðanagrein á Vísi þar se...
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
📅 25.07.2026 👁️ 1
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer Fréttin25. júlí 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment John Mearsheimer, sérfræðing...
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuver...
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
📅 25.07.2026 👁️ 1
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
Kolefnisgjaldið sem drepur allt Fréttin25. júlí 2026Evrópusambandið, Geir Ágústsson, Innlent, SamgöngurLeave a Comment Geir Ágústsson skrifar: Haft ef...
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
„Þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur. Við vöknuðum í gær í glampandi sól og blíðu, eins og næstum hvern einasta dag síðustu þrjár vikur...
Utanríkisráðuneyti á villigötum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Utanríkisráðuneyti á villigötum
Utanríkisráðuneyti á villigötum Fréttin25. júlí 2026Björn Bjarnason, Evrópusambandið, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Inngr...
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
📅 25.07.2026 👁️ 1
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands Fréttin25. júlí 2026Fjölmiðlar, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Bobby Fisher heitinn. Páll Vilhjál...
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir út vegna elds í sumarbústað laust eftir klukkan 12 í dag. Bústaðurinn er alelda. Þetta staðfestir Guðmundur Hreins...
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang þar sem er þó nokkur viðbúnaður og unnið að því að ráða niðurlögum eldsins. Þetta staðfestir aðalvarðstjó...
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
📅 25.07.2026 👁️ 1
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
See inside Andy Burnham's first week in charge, with an exclusive behind the scenes look with Laura Kuenssberg.
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
Lísbet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur stýrir uppgreftinum og segir að um sé að ræða verstöð sem var í notkun frá elleftu öldinni og fram á þá átján...
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
Nei-hópurinn hefur verið háværari en já-hópurinn en fyrir því er góð ástæða. Skilaboð já-hópsins eru einföld og mjög skýr og snýst um að þjóðin veiti ...
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
Þá heyrum við frá lögrelunni um alvarlega líkamsárás sem varð í Reykjavík í nótt þar sem manni var fleygt fram af svölum. Einnig tökum við stöðuna á B...
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
Áform Orkusölunnar um að reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði hafa vakið úlfúð í nærsamfélaginu. Heimastjórn leggst gegn framkvæmdinni ...
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
„Það endar með því að verða þarna átök milli einhverra, nokkurra ungmenna,“ segir Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuð...
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
Families visiting France from the UK and elsewhere have told the BBC how their holidays have become evacuation missions.
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Það komu þarna tveir að heimili þessa manns, og töldu s...
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, óttast að ef erlendri fjárfestingu verði hleypt inn í íslenskan sjáva...
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
Bandaríski íslamski fræðimaðurinn og prédikarinn Yasir Qadhi heimsótti Ísland á dögunum og ávarpaði þar söfnuð múslima. Í ræðunni hvatti hann múslima ...
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
Það ríkti alveg sérstök stemning, hlaðin gleði og ljúfum minningum, þegar Vopnfirðingar fjölmenntu á ljósmyndasýninguna „Þorpið“ sem var haldin var í ...
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika Guðný Helga Sæ­mundsen seg­ir sveita­líf­ið hafa mót­að sig mest. Þar hafi ein­fald­leiki lífs­ins orð­ið til þess...
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
📅 25.07.2026 👁️ 1
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
„Ef maður fer inn á Igloo þá koma kannski upp 500 möguleikar en þegar maður hakar við „gæludýr leyfð“ í filter þá eru möguleikarnir kannski bara tveir...
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
Tveir menn sem voru handteknir fyrir að henda manni fram af svölum á fyrstu hæð í gærkvöld komust inn í íbúð hans í gegnum glugga. Maðurinn hafði neit...