Mikil leit hefur staðið yfir þar sem þyrlur, flugvélar og aðrir bátar leita á um þúsund ferkílómetra svæði.
Neyðarkall barst frá ferjunni klukkan ellefu á laugardagskvöld að staðartíma þegar hún var um miðja vegu komin eftir Atlantshafsströndinni frá höfuðborginni Georgetown til Port Kaituma í vesturhluta landsins.
Í máli innviðaráðherra landsins hefur komið fram að ferjan var útbúin 250 björgunarvestum auk átta björgunarbáta. Ráðherran hefur vísað á bug ásökunum um að slysið hafi orðið vegna þess að ferjan var ofhlaðin farmi eða farþegum.
Tildrög slyssins eru óljós á þessu stigi máls.
Gvæjana er lítið ríki nyrst í Suður-Ameríku þar sem býr ein milljón manns. Landið er eina enskumælandi land álfunnar og er rétt rúmlega tvöfalt stærra en Ísland.