Lögregla rannsakar enn innbrot í grísa- og alifuglabú í Mosfellsbæ og á Kjalarnesi. Innbrotin eru talin tengjast og fleiri en einn liggja undir grun.
Brotist var inn í hænsna- og kalkúnabúið á Reykjum í Mosfellsbæ í byrjun júní og á svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí. Dýrum var hleypt út og skemmdarverk unnin á búunum.
Birna Guðrún Einarsdóttir lögreglufulltrúi segir lögreglu enn afla gagna og rannsaka hverjir kunni að hafa verið að verki. Bæði sé til rannsóknar hvort einn hafi verið að verki eða hópur fólks. Fleiri en einn einstaklingur liggi undir grun en enginn hefur verið boðaður í skýrslutöku enn sem komið er.
Rannsókn er í forgangi hjá lögreglu. Málin eru rannsökuð sem brot á lögum um dýravelferð, innbrot og eignaspjöll. Innbrotin leiddu til þess að einhver dýr drápust og önnur þurfti að aflífa. Birna Guðrún segir endanlega tölu dauðra skepna vegna þessa ekki liggja fyrir.
Í bréfi sem var skilið eftir á svínabúinu kom fram að innbrotið hefði verið framið í nafni dýravelferðar. Svipað bréf var skilið eftir í kalkúnabúinu en skemmdist mikið í fjaðrafokinu og var því illskiljanlegt.
Birna Guðrún segir að það sem hafi átt sér stað á búunum þessi tvö kvöld eigi fátt skylt við verndun dýra. Verknaðirnir séu sömuleiðis ekki í takt við aðgerðir hefðbundinna dýraverndunarsamtaka og aðgerðasinna.