Fjölskyldur 146 venesúelskra flóttamanna sem fórust í jarðskjálftunum sem riðu yfir strandhéraðið La Guaira fyrir réttum tveimur mánuðum krefjast afsökunarbeiðni frá stjórnvöldum.
Fólkinu var komið fyrir í gömlu og lélegu húsnæði í strandríkinu La Guaira örfáum klukkustundum áður en skjálftarnir riðu yfir. Stjórnvöld segja það hafa verið 120 karlmenn, 19 konur og sjö börn.
Fólkið var svipt eigum sínum og farsímum og þess rækilega gætt af útsendurum leyniþjónustunnar.
Oswadelis Nunez segir í samtali við AFP óskiljanlegt að 29 ára gamall sonur hennar sem lést hafi verið handtekinn auk þess sem hún segir stjórnvöld hafa komið í veg fyrir að fólkið gæti forðað sér úr byggingunni.
Hún segir ættingja þeirra sem létust krefja stjórnvöld bóta, afsökunarbeiðni og skýringa á framferði sínu við fólkið. Auk þess þurfi að bæta vinnubrögð við brottflutning flóttafólks.
Stjórnvöld í Venesúela tilkynntu í gær að vitað væri að 6.509 hefðu týnt lífi í jarðskjálftunum. Samkvæmt síðustu tölum höfðu 6.438 fundist látnir. Ríkisstjórnin hefur ekki greint frá hve margra er saknað.
Skjálftarnir 24. júní voru af stærðinni 7,2 og 7,5 og lögðu La Guaira nánast í rúst, næstum tvö hundruð byggingar hrundu til grunna.
Þúsundir misstu heimili sín og hafast við í bráðabirgðahúsnæði og stjórnvöld segjast þegar hafa útvegað 335 fjölskyldum húsaskjól. Þau vonast til að fjögur þúsund heimili verði tilbúin fyrir áramót. Björgunarsveitir vinna enn af kappi við leit í rústum húsa í La Guaira.