Fjölmiðlanefnd rannsakar RÚV vegna Helga Seljan

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Fjölmiðlanefnd er með RÚV til rannsóknar vegna brota á reglum og lögum um fjölmiðla. Fréttamaður RÚV, Helgi Seljan, ásakaði Pál skipstjóra Steingrímsson að hafa hótað sér í þrígang. Ummælin lét Helgi falla í dönskum fjölmiðli, Berlingske. RÚV endurbirti ásakanir Helga og neitaði skipstjóranum um andsvör.
RÚV birti sína frétt áður en frétt Berlingske birtist, eins og rakið er í Nútímanum. Ásakanir Helga Seljan voru ekki bornar undir Pál skipstjóra í fréttum RÚV. Er það brot á meginreglu fjölmiðla, sem staðfest er í lögum, um að maður er sætir ásökun skuli fá tækifæri til að svara á sama vettvangi. Málið er því alvarlegra að sá sem birtir opinberlega ásakanir er fréttamaður RÚV. Ríkisfjölmiðillinn lætur sér vel líka að fréttamaður í hefndarhug misnoti aðstöðu sína til að flytja ósannar fréttir um nafngreinda menn.
RÚV-fréttin birtist sunnudagskvöldið 19. apríl og er um tvo Pála, Steingrímsson og tilfallandi bloggara. Í fréttinni segir í upphaflegri útgáfu:
Berlingske hefur eftir Helga [Seljan] að Páll Steingrímsson hafi að minnsta kosti í þrígang sent honum hótanir í tengslum við umfjöllun hans um Samherja, sem og öðrum blaðamönnum. (feitletr. pv)
í frétt Berlingske, sem birtist eftir RÚV-fréttina, sagði aðeins að um hótun hafi verið að ræða; RÚV bætti um betur og sagði að hótun hafi verið höfð í frammi í þrígang. Engin gögn eru til stuðnings meintum hótunum, hvorki í Berlingske né RÚV, aðeins orð Helga Seljan.
Páll skipstjóri fór fram á leiðréttingu á RÚV strax eftir birtingu, sunnudagskvöldið 19. apríl, með tölvupósti. Hann kannast ekki við að hafa nokkru sinni hótað Helga eða öðrum blaðamönnum. RÚV virti skipstjórann ekki svars fyrr en rúmri viku eftir að hann sendi ríkisfjölmiðlinum ósk um leiðréttingu.
RÚV leiðrétti ekki fréttina fyrr en eftir dúk og disk. Tvær leiðréttingar voru gerðar á fréttinni mánudaginn 27. apríl, átta dögum eftir að frumfréttin birtist. Heiðar Örn fréttastjóri leiðrétti upphaflega ásökun Helga um hótanir í þrígang yfir ásökun um að skipstjórinn hefði ,,óbeint" hótað Helga og öðrum fréttamönnum. Leiðrétta útgáfan:
Berlingske hefur eftir Helga að Páll Steingrímsson hafi ítrekað sent sér og öðrum blaðamönnum óbeinar hótanir í tengslum við umfjöllun hans um Samherja. (feitletr. pv)
Fyrir utan það hve óeðlilegt er að fréttastjóri RÚV ,,leiðrétti" frétt Berlingske um ásakanir fréttamanns RÚV - í stað þess einfaldlega að krefja Helga svara og veita skipstjóranum tækifæri til andsvara - er ,,óbein hótun" engu að síður alvarleg ásökun. Skipstjórinn kannast ekki við að hafa hótað Helga eða öðrum blaðamönnum, hvorki beint né óbeint.
Páll skipstjóri sendi erindi til Fjölmiðlanefndar og sagði RÚV vega að æru sinni og orðspori með ósönnum fréttum um að hann hóti blaðamönnum. RÚV hafi þverskallast í rúma viku að leiðrétta upphaflegu fréttina. Þegar leiðréttingin birtist loksins var hún í skötulíki, hótanir í þrígang breyttust í óbeinar hótanir.
Í leiðbeiningum Fjölmiðlanefndar segir um leiðréttingar í fjölmiðlum:
Synji fjölmiðillinn beiðninni eða bregðist ekki við henni innan þriggja sólarhringa má beina kvörtun til Fjölmiðlanefndar sem tekur ákvörðun um hvort aðili eigi rétt á að koma andsvörum á framfæri.
Ekki aðeins braut RÚV reglu um leiðréttingar í fjölmiðlum. Í ákafa sínum að koma höggi á Pál skipstjóra braut ríkisfjölmiðillinn lög. Í 36. grein laga um fjölmiðla segir:
Aðili sem telur að lögmætir hagsmunir sínir, einkum æra eða orðspor, hafi beðið tjón af því að rangt hafi verið farið með staðreyndir í fjölmiðli hefur rétt til andsvara í viðkomandi miðli eða til annarra jafngildra úrræða. Andsvör skulu birt eða þeim miðlað þegar eftir að rök hafa verið færð fyrir beiðni þar um. Birta skal andsvör óháð formi fjölmiðils þannig að eftir verði tekið.
Fjölmiðlanefnd tók erindi Páls skipstjóra til forskoðunar. Í framhaldi var sett í gang rannsókn á vinnulagi RÚV. Ríkisfjölmiðillinn fær tækifæri til að útskýra sína hlið mála. Fjölmiðlanefnd birtir úrskurði sína opinberlega.