Fjölmiðlafyrirtæki Donalds Trump tilkynnti í dag að það hygðist selja hraðari aðgang að færslum Bandaríkjaforseta á samfélagsmiðlum sem geta haft áhrif á markaði. AFP-fréttastofan greinir frá þessu.
Með þessu móti er verið að græða á færslum Trumps á miðlinum Truth Social, en hann hefur verið duglegur að nota miðilinn til upplýsinga um alls konar málefni sem oftar en ekki skapa fyrirsagnir á heimsvísu.
Trump Media segir að svokölluð „Truth API“-þjónusta muni veita leyfisskyldan rauntímaaðgang að færslum þeirra reikninga sem njóta mestrar hylli á Truth Social.
Þjónustan, sem hefst 1. ágúst, gæti nýst verðbréfasölum og fjármálafréttamiðlum sem treysta á sekúndubrotamun þegar kemur að nýjustu fréttum.
Brúar bilið fyrir fyrirtæki sem hafa treyst á handvirka vöktun
„Markaðir hreyfast nú þegar við færslur á Truth Social,“ sagði Kevin McGurn, starfandi forstjóri Trump Media og Technology Group.
Fyrirtækið sagði að þjónustan myndi hjálpa til við að „brúa bilið“ fyrir þau fyrirtæki sem hingað til hafa treyst á handvirka vöktun á færslum á Truth Social.
Trump stofnaði Truth Social eftir að honum var bannað að nota Twitter, sem nú heitir X, eftir árás stuðningsmanna hans á þinghúsið í Bandaríkjunum sem reyndu að snúa við ósigri hans í kosningunum árið 2020.
Miðillinn er nú hans helsti vettvangur til að koma á framfæri stórum tilkynningum. AFP-fréttastofan segir að sala á færslum hans veki upp spurningar um það hvort Trump sé að hagnast persónulega á forsetaembættinu.
Samkvæmt opinberum gögnum sem birt voru í júní sl. þénaði Trump að minnsta kosti 1,2 milljarða dala á rafmyntarstarfsemi fjölskyldu sinnar á síðasta ári.