720 þingmenn sitja á Evrópuþinginu, kjörnir til fimm ára í senn. Íbúafjöldi í hverju aðildarríki er það sem ákvarðar fjölda frá hverju ríki, þó þannig að smærri ríkin fá hlutfallslega fleiri en þau stóru.
Þannig koma 96 þingmenn frá Þýskalandi, og 81 frá Frakklandi – en aðeins sex, sem er lágmarkið, frá Kýpur, Möltu og Luxemborg.
Fréttastofa RÚV ræddi við tvo þingmenn, frá Lúxemborg og Möltu, þau koma úr flokkahópum Sósíal Demókrata og Græningja - og bað þau að meta stöðu sína á þinginu, komandi frá tveimur af smæstu aðildarríkjum Evrópusambandsins.