Fjögurra barna móðir sem er að flýja ofbeldissamband sem hefur staðið yfir í mörg ár er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.
Hún hafði verið tiltölulega nýskilin við fyrri mann sinn og barnsföður þegar hún kynntist þessum manni.
„Skilnaðurinn við fyrri barnsföður minn var í góðu, við héldum áfram að ala börnin okkar upp saman og héldum sambandi, fyrir börnin,“ segir konan í viðtalinu.
Rauðu flöggin sáust strax
Konan segir að rauð flögg hafi fljótlega komið í ljós í nýja sambandinu en hún horfði framhjá því og hugsaði með sér að líklega væri þetta bara nýtt og öðruvísi.
Ofbeldið var mikið andlegt niðurbrot alveg frá byrjun þar sem henni var sagt að hún væri heimsk, gæti ekkert gert rétt, væri ómöguleg móðir og þess háttar.
Segir konan að maðurinn hafi fylgst með síma hennar og tölvu öllum stundum.
„Ef ég var einhver staðar, sem gerðist alltaf sjaldnar og sjaldnar, hringdi hann stanslaust og ef ég færði mig fékk ég skilaboð eða símtal þar sem ég þurfti að útskýra hvers vegna og með hverjum ég væri.”
„Sá yngri segir mér að þegja“
Hún tjáir sig um eitt atriði sem tengist barnavernd á Akureyri.
„Hann réðst að elsta syni mínum og endaði á að læsa sig inni í herbergi með honum og öskra stanslaust á hann. Ég margsagði honum að opna dyrnar því annars myndi ég hringja á lögregluna. Ég endaði á að hringja, barnavernd var kölluð til, sem ég var ánægð með. Barnavernd lokaði þessu með því að segja að við værum með ólíkar uppeldisaðferðir.”
„Ég fékk ákveðinn svip frá honum ef við vorum einhvers staðar og honum fannst ég hafa sagt eitthvað vitlaust. Þá vissi ég að það biði mín ekkert gott þegar heim væri komið.”
Börn læra það sem fyrir þeim er haft og á hún tvö börn með þessum manni.
„Tveir yngri synir mínir, synir okkar, bera ekki virðingu fyrir mér. Sá yngri segir mér að þegja, að ég sé heimsk og fer almennt ekki eftir neinu sem ég segi.”
Barnsfaðir hennar gróf undan henni, markvisst, þegar hún ætlaði að segja drengnum til eða siða hann til. Þá hafi faðirinn alltaf gripið inn í og niðurlægt hana fyrir framan börnin.
Nálgast má viðtalið hér að neðan eða á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Í þessari frétt er fjallað um ofbeldi í nánu sambandi. Verðir þú fyrir ofbeldi í nánu sambandi eða ef grunur vaknar um slíkt er bent á lögreglu í síma 112, Kvennaathvarfið í síma 561-1205 og hjálparsíma Rauða krossins í 1717. Þá má nálgast leiðarvísi fyrir þolendur slíks ofbeldis á vef Neyðarlínunnar.