Terra veitti á dögunum í fyrsta skipti sjálfbærnistyrki þar sem áhersla var á umhverfis- og hringrásarlausnir. Alls bárust um 70 umsóknir sem endurspegla þann mikla kraft og nýsköpun sem er til staðar hér á landi. Eftir yfirferð og mat umsókn voru sex verkefni valin til að kynna hugmyndir sínar fyrir valnefnd. Að lokum hlutu fjögur verkefni styrk árið 2026 en þau eru IceSand, GróBox, Loopable og Odasia.
Fjögur nýsköpunarverkefni hlutu fyrstu sjálfbærnistyrki Terra