Hátt í fjögur hundruð krakkar tóku þátt í árlegri dorgveiðikeppni í glampandi sól á Flensborgarbryggju í Hafnarfirði í dag. Aflaklær ársins voru tvíburar sem nældu í yfir 25 fiska.
Stella Björg Kristinsdóttir, tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, segir dorgveiðina áralanga hefð. „Ég held að við séum búin að vera hérna í yfir 30 ár.“
Veiðin gekk misvel. Þó að sum hafi ekki verið búin að veiða neitt þegar fréttastofu bar að garði voru þau vongóð um að fljótlega myndi bíta á agnið.
Af hverju?
„Útaf því við erum með uppáhaldsbeituna hjá fiskum. Það er maís,“ sagði Elvar Smári Guðlaugsson dorgveiðikappi.