Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, segist lítið geta gert til að efla útgáfu námsgagna ef ríkið leggur ekki til frekara fjármagn í málaflokkinn.
Frumvarp sem ætlað er að bæta úr áralöngum námsgagnaskorti hefur þrívegis verið lagt fram á Alþingi en aldrei verið samþykkt.
Íris E. Gísladóttir, formaður stjórnar Þróunarsjóðs námsgagna, sagði í Síðdegisútvarpinu á þriðjudag að samkvæmt hennar heimildum væri búið að salta námsgagnafrumvarpið sem Guðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi menntamálaráðherra, mælti fyrir í apríl á síðasta ári. Það yrði í það minnsta ekki endurflutt í núverandi mynd.
Vill þjóðarsátt
„Staðan er frekar svört,” segir Þórdís Jóna í Síðdegisútvarpinu á Rás 2.
Hún segir þetta spurningu um forgangsröðun. Ef aðeins lítill hluti þess fjármagns sem búið er að úthluta til vegaframkvæmda færi í að efla námsgagnagerð myndi það að lokum skila sér í aukinni landsframleiðslu, auknum lífsgæðum og tækifærum.
„Ég held að við þurfum bara að búa til þjóðarsátt og ákall um það að þetta verði sett á dagskrá.”
Bíða eftir frumvarpinu
Á meðan að frumvarpið safnar ryki geti MMS lítið gert til að efla námsgagnagerðina.
„Ef við erum ekki með neina fjármuni þá er óskaplega erfitt fyrir okkur að búa til meira námsefni og jafnvel bara að prenta efnið sem við eigum. Því það koma nýir árgangar og við þurfum að prenta alltaf nýtt til þess að mæta því.”
Hlustaðu á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.