Fjárfestir í foreldrahúsum
Markús Máni Skúlason er 24 ára og því yngsti karlmaðurinn á hátekjulistanum í ár. Hann byrjaði að fjárfesta 18 ára og segir að á yngri árunum sé mikilvægt að „vera duglegur að endurfjárfesta“ og ekki eyða því sem maður hefur safnað.
„Það er bara gaman og kemur smá á óvart,“ segir hinn 24 ára Markús Máni Skúlason þegar blaðamaður tjáir honum að hann sé yngsti karlmaður hátekjulistans í ár. „[Það er] frekar athyglisvert. Ég var ekki beint að gera ráð fyrir því.“
Markús er fæddur árið 2002 og er með 50.673.146 krónur í árstekjur. Hann prýðir því 1.768. sæti listans.
„Þetta er sem sagt frá hlutabréfaviðskiptum. Ég hef haft áhuga á þeim í mjög langan tíma og hef verið að fjárfesta síðan ég var 18 ára. Það hefur gengið ágætlega,“ útskýrir hann. Markús byrjaði fjárfestingaferil sinn á því að nota uppsafnaðan sparnað frá æsku- og unglingsárunum en í dag starfar hann sem sérfræðingur við hlutabréfagreiningu hjá Arion banka. „Þetta er mitt helsta áhugamál,“ lýsir hann. Spurður hvaðan fjármálaáhuginn sé sprottinn segist Markús ekki viss. Í raun telji hann fjárfestingar helst vera góða leið „til þess að græða pening, ávaxta og spara“. …