Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að dælubíll hafi verið sendur á vettvang til að hreinsa upp eftir áreksturinn en að sjúkrabíll hafi ekki verið sendur út á miklum forgangi og þess vegna væntir hann ekki að neinn sé alvarlega slasaður. Lögregla er einnig á vettvangi og ljóst að einhverjar umferðartafir hljótist af árekstrinum.