Í þættinum Um land allt á Sýn+ eru slóðir þessara dimmu atburða í Húnavatnssýslum fyrir nærri tvöhundruð árum heimsóttar og rætt við heimamenn. Á aftökustaðnum Þrístöpum fer Magnús Ólafsson, sagnamaður og fyrrum bóndi á Sveinsstöðum, yfir söguna en hann ritaði bókina „Öxin, Agnes og Friðrik“ um atburðina. Aftakan þótti svakaleg.
„Björn Blöndal sýslumaður ætlaði að gera þetta þannig að menn myndu eftir þessu. Hann knúði Guðmund Ketilsson, bróður Natans, til að vera böðul. Hann fór í verkið og hjó svo fast og svo örugglega að þegar haus var höggvinn af Friðriki þá þurfti tvo menn til þess að ná öxinni upp úr höggstokknum, svo fast fylgdi hann eftir högginu,“ segir Magnús í þættinum en Þrístapar eru í landi Sveinsstaða.
Þátturinn var frumsýndur síðastliðinn miðvikudag. Hann verður endursýndur á Sýn+ í dag, sunnudag, klukkan 15.
Ábending sem sögð var komin frá miðli 104 árum eftir aftökuna leiddi til þess að bein Agnesar og Friðriks voru árið 1934 flutt frá Þrístöpum og jarðsett í kirkjugarðinum að Tjörn á Vatnsnesi. Hér má sjá kafla þar sem þessum sérkennilega atburði er lýst í þættinum:
Þau Friðrik og Agnes voru dæmd til dauða fyrir morð á tveimur mönnum, Natani Ketilssyni og Pétri Jónssyni. Morðin voru framin tveimur árum áður á bænum Illugastöðum á Vatnsnesi en þar bjó Natan.
Það gleymist stundum í sögunni að önnur kona var einnig dæmd til lífláts og talin meðsek, Sigríður Guðmundsdóttir. Hún var aðeins 16 ára þegar morðin voru framin. Agnes og Sigríður voru báðar vinnukonur hjá Natani á Illugastöðum. Danakonungur breytti hins vegar dauðadómi Sigríðar í lífstíðarfangelsi.
Nokkrar íslenskar bækur hafa verið skrifaðar um málið og María Ellingsen lék Agnesi í kvikmynd frá árinu 1995, sem Pegasus og Snorri Þórisson framleiddu en Egill Eðvarðsson leikstýrði, og byggð er á þessum atburðum.
Málið var samt lítt þekkt utan Íslands fyrr en ástralskur rithöfundur, Hannah Kent, sem dvalið hafði í Skagafirði sem skiptinemi, skrifaði skáldsögu um Agnesi. Bókin kom út árið 2013, varð metsölubók á enskri tungu undir heitinu Burial Rites og fékk titilinn Náðarstund í íslenskri þýðingu.
Bókin varð alþjóðleg metsölubók, hefur verið þýdd á yfir þrjátíu tungumál og selst í mörghundruð þúsund eintökum. Kvikmyndarétturinn seldist fyrir háa fjárhæð og búið var að kynna að Jennifer Lawrence ætti að leika Agnesi. Covid-heimsfaraldurinn varð hins vegar til þess að kvikmyndatökum var slegið á frest og síðan hefur lítið frést af þeim áformum.
Skáldsaga Hönnu Kent leiddi til þess að fjöldi ferðamanna hóf að koma víða að úr heiminum til að skoða sögusviðið. Eigendur Illugastaða á Vatnsnesi eru meðal viðmælenda þáttarins, einnig bændur á Tjörn á Vatnsnesi sem sýna okkur gröf þeirra Friðriks og Agnesar og einnig staðinn þar sem talið er að þeir Natan Ketilsson og Pétur Jónsson séu grafnir. Bæirnir Kornsá, Vatnsdalshólar og Hvammur í Vatnsdal eru heimsóttir, sem og Þingeyrar og Steinnes.