Erlendir fjölmiðlar greina frá því að Tyrklandsforseti hafi gefið öllum leiðtogum NATO-ríkjanna og nokkrum til viðbótar skammbyssu að kveðjugjöf þar sem nafn viðkomandi hafði verið áletrað.
Í frétt Aftonbladet segir að einhverjir leiðtoganna hafi ákveðið að skilja sínu byssu eftir í Tyrklandi þar sem þeir sáu fram á að erfitt myndi reynast að koma henni aftur til heimalandsins.
BBC segir þannig frá því að byssu Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sé að finna í sendiráði Bretlands í Tyrklandi þar sem óheimilt er að flytja virk skotvopn til Bretlands. Er reiknað með að hún verði tekin í sundur áður en hún verður flutt heim.
Ekki hefur náðst í aðstoðarmann Kristrúnar vegna málsins.
Leiðtogafundur NATO stóð yfir í Ankara frá þriðjudegi til miðvikudags.