Dóttir brotaþola í Reykholtsmálinu og barnsmóðir hans gáfu skýrslu fyrir dómi í dag og lýstu því hvernig var ástatt hjá brotaþola þegar hann kom til Möltu.Var mjög hræddur og er það ennÁður en brotaþoli lenti á Möltu hafði dóttir hans, sem er þar búsett, fengið símtal frá yfirmönnum brotaþola sem höfðu áhyggjur af honum. Ekkert hafði heyrst frá brotaþola í nokkra daga. Dóttirin bað yfirmennina um að hafa samband við lögreglu og hafði svo sjálf samband við vini föður síns sem hann hafði verið í reglulegum samskiptum við.
Fékk áfall þegar hún sá framan í brotaþola Reykholtsmálsins - „Hann var hræddur“