Það gekk talsvert á 30. júlí við spænsku sjálfstjórnarborgina Ceuta, sem er rétt sunnan Gíbraltarsunds frá Spáni. Landræðilega er borgin í Marokkó, rétt eins og borgin Melilla, en þær tilheyra engu að síður Spáni.
Þennan dag var þjóðhátíðardagur Marokkó haldinn hátíðlegur handan girðinganna sem skilja borgirnar frá Marokkó. Tugir þúsunda Marokkóbúa ákváðu að nota tækifærið og reyna að komast yfir landamærin, flýja í raun til Spánar. Þennan dag og dagana á eftir komust allt að 70 þúsund manns yfir landamærin inn í Ceuta, margir syndandi sjóleiðina.
Flestir voru ungir Marokkómenn. Spánn sendi herlið til Ceuta og tugir drukknuðu eða létust í troðningi. Áður en á löngu leið höfðu 70.000 snúið aftur til Marokkó.
Þegar svona áhlaup verður er eðlilegt að velta fyrir sér ástæðunni. Og ekki skortir kenningarnar – sem allar eiga sér einhverjar rætur, en ekki endilega traustar stoðir.
Dómurinn sem markaði upphafið
Byrjum á kveikjunni, sem virðist hafa verið úrskurður hæstaréttar Spánar frá 8. júlí, þar sem skorið var úr um að ekki mætti endilega beita reglugerð um tafarlausa brottvísun frá landamærunum á flóttafólk sem kæmi syndandi til Ceuta eða Melilla. Þetta var lagatæknilegur úrskurður, áfram mátti vísa fólki úr landi, en á samfélagsmiðlum í Marokkó fór einfaldari útgáfa eins og eldur í sinu: Landamærin væru opin.
Associated Press rakti fjölda færslna þessa efnis þar sem mátti jafnframt fylgjast með mynstri ferða landamæravarða sem og hvar heppilegast væri að leggjast til sunds. Fjöldi þessara samfélagsmiðlareikninga hvarf svo fljótlega eða var eytt. Óljóst er hvort einhver reyndi að dreifa þessum boðum með skipulögðum hætti, en Guardian greindi frá því fyrir helgi að vísbendingar væru um tengsl við samfélagsmiðlareikninga sem Rússar hefðu notað til að dreifa falsfréttum og magna öfgafulla umræðu í Evrópu.
Landamæragæslan sem hvarf
Það sem vakti frekari grunsemdir var að landamæragæslan í Marokkó er að jafnaði öflug en virtist snarminnka einmitt þegar áhlaupið hófst. Spænskir fjölmiðlar vitna til heimilda innan þarlendra leyniþjónustustofnana um að Marokkó hafi smám sama minnkað eftirlit og svo í raun hætt því þegar mest gekk á. Leyniþjónusturnar telja ekki að stjórnvöld í Rabat hafi kveikt eldinn, en í það minnsta leyft honum að magnast. Marokkósk stjórnvöld hafna því með öllu.
En það er ekki að ástæðulausu sem grunur beinist að þeim: 2021 komust um 9000 manns inn í Ceuta eftir að löggæsla á landamærunum var minnkuð. Það gerðist í kjölfar pólitísks ágreinings marokkóskra og spænskra yfirvalda.
Rannsókn Evrópuþingsins leiddi til þeirrar niðurstöðu að Marokkó hefði vísvitandi notað flóttamenn til að skapa pólitískan þrýsting á Spán.
Samsæriskenningar um Ísrael og Bandaríkin
Samsæriskenningarnar ná lengra og dýpra. Kenningar um afskipti Ísraels og Bandaríkjanna hafa jafnframt verið í umræðunni. Bent hefur verið á náin og vinsamleg tengsl ráðamanna í Marokkó við ráðamenn í Ísrael og Bandaríkjunum, að það sé pólitískur áhugi í öllum þessum löndum að valda uppnámi og sundrungu í Evrópu.
Og vissulega gekk það eftir: Ítalir frystu Schengen-samstarf við Spán, fjöldi Evrópuleiðtoga skammaði Spánverja fyrir slaka frammistöðu og sofandahátt, Spánverjar sjálfir fóru í hálfgerða fýlu.
Það sannar þó hvorki aðkomu Ísraels né Bandaríkjanna – en í báðum tilvikum má finna líklega kveikju samsæriskenninganna.
Í mars skrifaði Michael nokkur Rubin, fræðimaður hjá hægrisinnaðri hugveitu og fyrrverandi ráðgjafi í bandaríska varnarmálaráðuneytinu, grein. Titillinn segir í raun allt: Marokkó ætti að efna til nýrrar, grænnar göngu inn í Ceuta og Melilla. Upphaflega Græna gangan var friðsamleg mótmælaganga um 350 þúsund Marokkómanna árið 1975, sem þáverandi konungur landsins efndi til. Tilgangurinn var að þvinga Spán til að gefa eftir landsvæði sem Spánn réð í Sahara-eyðimörkinni. Óneitanlega má finna hliðstæður með atburðarásinni í Ceuta – en greinarhöfundurinn Rubin er álitsgjafi og ekki hluti stjórnkerfisins í Bandaríkjunum.
Í apríl birtist síðan álitsgrein á ísraelska miðlinum Ynet þar sem lagt var til að Ísrael hjálpaði Marokkó að ná Ceuta og Melilla, meðal annars vegna versnandi sambands Spánar við Washington. Höfundurinn sagði slíkt í raun refsa Spánverjum – en hann er ekki fulltrúi ísraelskra stjórnvalda, heldur stjórnmálaskýrandi og í Marokkó.
Af litlum neista...
Það sem virðist hafa gerst á sér að öllum líkindum eðlilegar eða sjálfsprottnar ástæður: Dómur hæstaréttar Spánar var rangtúlkaður og sú útgáfa lifnaði við á samfélagsmiðlum. Þessar upplýsingar féllu í frjóan svörð: Í rannsókn Arab Barometer frá 2024 sögðust 55% Marokkómanna á aldrinum 18–29 ára hafa íhugað brottflutning. Af þeim Marokkómönnum sem vildu flytja úr landi sögðust 53% geta hugsað sér að fara jafnvel án tilskilinna pappíra. Samkvæmt Hagstofu Marokkós lætur nærri að fjórir af hverjum tíu Marokkómönnum á aldrinum 15-24 ára séu án atvinnu. Á myndum frá Ceuta má nánast eingöngu sjá drengi og unga menn á þessu aldursbili.
En þegar allt fór af stað virðast yfirvöld í Marokkó hafa notað tækifærið til að klekkja á Spánverjum, rússneskar falsfréttaverksmiðjur stukku á málið. Og þannig má segja að þetta sé gott dæmi um upplýsingaóreiðu eða fjölþáttaaðgerðir sem hálfgert stríðstól: Af litlum neista er allt gert til að magna mikið bál.