Íslendingur sem búsettur er í Lundúnum segist aldrei hafa upplifað annan eins hita í borginni. Banvæn hitabylgja ríður yfir Evrópu og eru líkur á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi.
Við verðum í beinni útsendingu frá nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót sem vígð var í dag. Fjöllum um söguna endalausu í Vesturbæjarlaug en lauginni var aftur lokað vegna þess að botn laugarinnar byrjaði aftur að flagna. Hittum unga dorgveiðimenn sem nutu fiskerís í sólinni og fjöllum um óvissu um framtíð listaverks við Sæbraut.