Faðir í Kaliforníu hefur verið ákærður fyrir að skjóta að unglingspiltum sem voru að leggja dóttur hans í einelti. Drengirnir köstuðu eggjum í heimilið og faðirinn skaut á bílinn þeirra.
Craig Steven Miceli, 55 ára maður frá bænum San Mateo í Kaliforníufylki í Bandaríkjunum, hefur verið ákærður fyrir árás með skotvopni og vörslu skotvopns sem fyrrverandi fangi. En Miceli skaut að ungingspiltum sem voru að leggja dóttur hans í einelti.
Eggjuðu húsið
Eins og segir í frétt People um málið átti atvikið sér stað fyrir tæpu ári síðan. Þann 23. maí árið 2025 safnaðist hópur 16 og 17 ára drengja á lóðinni hjá Miceli og hellti olíu yfir pallinn. Ástæðan var sú að þeim líkaði ekki dóttir hans, sem er 15 ára.
Tveimur dögum seinna sneru drengirnir aftur að Miceli heimilinu, nú vopnaðir hráum eggjum. Létu þeir eggjum rigna yfir húsið en létu sig svo hverfa þegar fjölskyldufaðirinn steig út vopnaður byssu. Keyrðu þeir burt en Craig skaut á bílinn og hæfði bílinn í tvígang.
Að sögn Stephen Wagstaffe, saksóknara í San Mateo, þá höfðu drengirnir sagst vera að prakkarahug. Þeir hafi hver fyrir sig kastað einu eggi í húsið.
Skiljanleg reiði
Hins vegar hafi Craig Miceli sagt lögreglunni að dóttir hans væri að verða fyrir einelti í skólanum sínum. Hann hafi aðeins ætlað að skjóta í dekkin á bílnum. Eftir atvikið fór hann og kastaði byssunni í stöðuvatn. En við húsleit á heimili hans fannst önnur byssa, það er hríðskotariffill.
„Ég held að allir skilji reiði hans,“ sagði Wagstaffe. „Honum fannst sem dóttir hans yrði fyrir einelti í skólanum. Nú hefur þetta gerst í tvígang. Við skiljum reiði hans. Vandamálið er það að reiði gefur fólki ekki heimild til þess að draga fram skammbyssu og skjóta að þremur táningum.“
Að sögn Wagstaffe er Miceli ekki með langa brotasögu sjálfur en þessi árás gæti valdið því að hann fái þungan dóm. „Það er ekki hægt að taka atvikum þar sem byssu er hleypt af af neinni léttúð,“ sagði hann.
Varaði unglinga við
Miceli er enn þá í varðhaldi vegna málsins. Hann hefur játað glæp sinn og verður refsing hans ákveðin þann 10. ágúst næstkomandi.
Drengirnir þrír verða hins vegar ekki ákærðir í málinu að sögn saksóknarans Wagstaffe. Hann varaði hins vegar öll ungmenni við því að „prakkarastrik“ eins og þetta gæti komið fólki í alvarlegt klandur.