Matvælastofnun hefur veitt fyrirtækinu Ísteka starfsleyfi fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum til tveggja ára. Það felur í sér viðbótarskilyrði til að fyrirbyggja blóðleysi og skyldu til að veita hryssum hvíld frá blóðtöku ef merki eru um blóðleysi.
Ísteka sótti um blóðtöku á allt að 10.000 hryssum næstu tvö árin en MAST veitti leyfi fyrir blóðtöku úr 4.900 hryssum. Samkvæmt tilkynningu frá MAST þótti ekki þörf á aukinni innlendri framleiðslu virka lyfjaefnisins eCG, sem er nýtt til lyfjaframleiðslu, því staðganga er til staðar í stórum hluta tilvika þar sem það er notað.
Þá liggi ekki fyrir upplýsingar um þörf á aukinni innlendri framleiðslu á eCG.
Leyfið felur meðal annars í sér aukin skilyrði um að fyrirtækið fylgist með blóðhag hverrar hryssu meðan á blóðtöku stendur. Ef merki eru um blóðleysi eiga þær að fá hvíld.
Með þessu er ætlað að tryggja betri velferð og lágmarka skaða af blóðtöku.
Yfir helmingur vill banna blóðmerahald
Blóðmerahald hefur verið mikið til umfjöllunar síðustu misseri og hafa margir gagnrýnt starfsemina á grundvelli dýravelferðarsjónarmiða. Maskína birti könnun í desember þar sem 52% svarenda voru hlynnt því að banna blóðmerahald hér á landi. 33% sögðust vera andvíg og 15% hlutlaus.
Dýraverndarsamband Íslands og nokkur evrópsk dýraverndarsamtök skoruðu á Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra, Hrönn Ólínu og Þóru J. Jónasdóttur yfirdýralækni MAST að framfylgja reglum og banna blóðmerahald.
Leyfi Ísteka fyrir blóðmerahaldi rann út í október. Fyrirtækið sótti um endurnýjað leyfi síðasta vor en umsókninni var hafnað á þeim grundvelli að hún uppfyllti ekki skilyrði reglugerðar um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni.
Blóðtaka úr fylfullum hryssum var færð undir reglugerðina 2023 í kjölfar áminningar frá Eftirlitsstofnun EFTA-dómstólsins.
MAST áskilur sér rétt til að endurskoða leyfið „ef frekari upplýsingar koma fram á starfsleyfistíma, meðal annars í yfirstandandi áhættumati Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) um velferð blóðmera“, að því er fram kemur í tilkynningu stofnunarinnar í dag.
Ákvörðun MAST um að veita leyfið er þar sögð byrja á heildstæðu mati úr umsókn Ísteka ásamt viðbótarupplýsingum sem óskað hafi verið eftir frá fyrirtækinu.