Smartland greindi fyrst frá.
Eyþór og Ástríður hafa verið saman frá því í byrjun árs 2020 en 26 ár greinir á milli þeirra, Eyþór er fæddur árið 1964 og Ástríður árið 1990. Þetta er þeirra fyrsta barn saman en Eyþór á fjögur börn fyrir.
Eyþór var oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni frá 2018 til 2022 en hóf þó starfsferilinn sem tónlistarmaður, fyrst í Tappa tíkarrass og svo í Todmobile með Andreu Gylfadóttur og Þorvaldi Bjarna og kemur enn fram með þeim. Ástríður er fædd árið 1990, ólst upp á Ítalíu og hefur vakið athygli hérlendis fyrir myndlist sína.