Alþingi hefur samþykkt að þjóðaratkvæðagreiðsla verði hér á landi laugardaginn 29. ágúst um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Stækkunarstjóri Evrópusambandsins sagði í sjónvarpsfréttum í gær að Íslendingar færu að miklu leyti eftir Evrópulöggjöfinni og aðlögunin sem þyrfti, umgjörðin um samningagerðina, yrði sú sama og lá til grundvallar árið 2010. Hún veiti nú þegar sveigjanleika til að hrinda í framkvæmd ákveðnum stjórnkerfisbreytingum eftir endanlegt þjóðaratkvæði um aðild.
Aðlögun að regluverki ESB alltaf legið fyrir
Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra segir að það sé skýrt, og stækkunarstjórinn staðfesti það þegar hann talar um sveigjanleika, að aðlögun hafi alltaf legið fyrir. „Það hefur alltaf legið fyrir en við erum, ef við höldum áfram með þessa aðildarumsókn sem ríkisstjórn Íslands er búin að plotta með Evrópusambandinu, þá byggir það auðvitað á aðildarumsókninni, að hún sé í gildi. Þar erum við með samning við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um aðlögun og það er þannig að við fengum um átta þúsund milljónir í að aðlaga okkur og þetta var bara skrifað út að framkvæmdastjórnin ákveður það hvernig hún veitir þessum fjármunum sem miðar að því að aðlaga okkur að regluverki ESB,“ segir Guðlaugur Þór.
Ríkisstjórnin forðist umræðu um ESB
Guðlaugur Þór segir að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur forðist umræðu um Evrópusambandið því eftir því sem umræðan sé meiri sé fylgið minna. Það sé ásetningur stjórnarinnar að hafa atkvæðagreiðsluna að sumri svo umræðan verði lítil. Hún reyni að villa um fyrir kjósendum.
Nú reyni á fjölmiðla að halda báðum sjónarmiðum á lofti
Guðlaugur Þór segir að nú reyni á styrk fjölmiðla í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst. „Markmið okkar, sem að teljum að Íslandi sé miklu betur borgið utan Evrópusambandsins, okkar verkefni verður bara að koma staðreyndum áleiðis. Eins og við erum að tala núna um aðlögunina. Og það verður auðvitað áskorun og það reynir mikið á fjölmiðla sem vilja láta taka sig alvarlega. Það reynir mikið á þá, hvort að þeir eru með, byggja fréttir á staðreyndum og hvort þeir komi með bæði sjónarhornin eða hvort þetta verði eitthvert eintal þeirra sem vilja ganga inn í Evrópusambandið,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson.
Viðtal við Guðlaug Þór Þórðarson má sjá í spilaranum hér fyrir neðan: