Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur samþykkt tímabundið regluverk um ríkisaðstoð til atvinnugreina sem verða fyrir áhrifum af stríðinu í Mið-Austurlöndum.
„Regluverkið heimilar markvissa og tímabundna aðstoð til atvinnugreina sem verða fyrir sérstaklega miklum áhrifum af stríðinu, þar á meðal landbúnaðar, sjávarútvegs, samgangna og orkufreks iðnaðar. Markmiðið er að takmarka efnahagslegar afleiðingar og styðja við mikilvæga hluta efnahagslífsins sem verða fyrir barðinu á háum orkukostnaði,“ segir í tilkynningu frá ESA.
Reglurnar samsvara reglum sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti fyrir aðildarríki þess í lok apríl.