Erfðir, siðferði og dómgreind

Erfðir, siðferði og dómgreind

Erfðir, siðferði og dómgreind

Erfðir, siðferði og dómgreind

Sjálf­hverfa er ekki sjálf­krafa til marks um lág­an sið­ferð­is­þrösk­uld. Kristján Kristjáns­son heim­speki­pró­fess­or rann­sak­aði per­sónu­leika­ein­kenni og sið­ferð­is­lega ákvörð­un­ar­töku.

Í barnæsku minni á Íslandi var oft talað um að þessi eða hinn væri „genetískur framsóknarmaður“. Þetta var vitaskuld í gamni sagt, en öllu gamni fylgir nokkur alvara. Rannsóknir síðustu áratuga hafa leitt í ljós að ýmis persónueinkenni, sem sérkenna okkur sem einstaklinga og beina okkur í siðferðilegar og pólitískar áttir, eiga sér erfðafræðilegan grunn sem kann að vera erfitt að uppræta með einberum viljastyrk. Nemendur í sálfræði hafa gaman að því að greina persónuleika þeirra sem virkastir (og einatt öfgafyllstir) eru á samfélagsmiðlum út frá skrifum þeirra þar; og slíkt mat getur verið upplýsandi þó að það sé varla fræðilega nákvæmt. Núverandi Bandaríkjaforseti er til að mynda oft flokkaður sem „sjálfhverfur“ og „samviskulaus“ þó að hann hafi naumast tekið nein formleg sálfræðipróf til að leiða slíkt í ljós. Ein grunnhugmyndin er sú að skautunin á samfélagsmiðlum sé að miklu leyti genetísk og siðferðiskennd einstaklinga, sem og dómgreind þeirra til að taka ákvarðanir í stórum málum (svo sem komandi þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi), sé að talsverðu leyti afsprengi þátta sem þeir hafa ekki fullt vald yfir. Þessar bollaleggingar eru áhugaverðar, en tengslin milli erfða, persónueinkenna og siðferðilegrar dómgreindar eða ákvarðanatöku eru býsna flókin – og ekki allt sem sýnist í fljótu bragði.

Stóru persónuleikaþættirnir fimm

Flestir hafa heyrt talað um stóru persónleikaþættina fimm (e. „Big Five“): víðsýni, samviskusemi, úthverfu, viðkunnanleika og taugaveiklun (sem er þó frekar óheppileg þýðing á „neuroticism“ þar sem það nær ekki einungis yfir streitu og kvíða heldur líka reiðigirni og öfundsýki). Þó að sálfræðinga greini á um erfðaþátt þessara fimm persónueinkenna þá er ágiskunin venjulega á bilinu 50-70%.

Það sem ruglar fólk oft í ríminu er að nöfnin á þessum þáttum og andhverfum þeirra (svo sem samviskusemi andspænis samviskuleysi eða víðsýni andspænis þröngsýni) hafa sterk siðferðileg blæbrigði. Ef til að mynda kæmi í ljós í sálfræðiprófum (sem ekki kæmi á óvart) að nei-fólkið í þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB-viðræður væri „þröngsýnna“ en já-fólkið gætu viðbrögðin verið þau að núa þeim fyrrnefndu um nasir að vera siðferðilega vanþroskaðri. En ef við köfum dýpra í skilgreiningar á þessum hugtökum kemur í ljós að þeim er ekki ætlað að flokka fólk eftir neinum siðferðilegum gæðakvörðum. „Þröngsýnni“ í skilningi „Big Five“ merkir einfaldlega „ekki eins opinn fyrir nýjungum eða breytingum“ – sem vitaskuld þarf ekki að vera löstur í fari fólks. Frekari dæmi sýna þetta vel: Félagi í glæpagengi sem rekst vel í þeim hópi getur skorað hátt í „viðkunnanleika“ og „samviskusemi“ (sem „glæpon“), á meðan innhverfur og feiminn einstaklingur, sem virðist alla jafna áhugalítill um hagsmuni samfélagsheildarinnar, getur reynst siðferðilega traustur þegar á reynir.

Í stærstu alþjóðlegu rannsókn á siðferðilegri dómgreind („phronesis“) hingað til, sem rannsóknarsetrið mitt í Bretlandi stóð fyrir, komu í ljós sáralítil tengsl milli persónuleikaþáttanna fimm og traustrar siðferðilegrar ákvarðanatöku. Það sem meira er, það getur verið hættulegt að reyna að breyta þeim í eigin fari (ellegar í fari barna okkar eða nemenda). Góðkunningi minn var lengi prófessor í sálfræði við Harvard. Hann er afskaplega innhverfur og uppburðalaus og skoraði lágt í vinsældaprófum hjá nemendum, sem töldu hann leiðinlegan og húmorlausan. Hann tók þetta mjög nærri sér og ákvað að leika úthverfan kennara sem reytti af sér brandara í tímum og blandaði geði við nemendur á kaffistofunni milli tíma. Þessi leikaraskapur tókst svo vel að hann var valinn vinsælasti sálfræðikennarinn á Harvard í nokkur ár í röð. En þessi „tilraun“ gróf undan heilsu hans. Hann fékk magasár, bakverki og svefnraskanir. Það var ekki fyrr en vinur hans, geðlæknir, stakk upp á því að hann væri ef til vill ekki „trúr sjálfum sér“ sem augu hans opnuðust og hann ákvað að vera bara hann sjálfur í framtíðinni. Öll mein hans læknuðust sjálfkrafa (þó að vinsældaprófin versnuðu aftur).

Úthverft fólk skorar að vísu hærra í lífshamingjuprófum en innhverft, en ástæðan kann einfaldlega að vera sú að úthverfa fólkið sé viljugra til að tjá sig um eigin lífsgleði en hið innhverfa, fremur en að það sé í raun hamingjusamara. Það gildir því hið sama um persónuleikaþættina fimm og það sem frænka mín gamla sagði jafnan við mig þegar ég vildi drepa hvimleiða rauðmaura í gluggakistunni sem barn: „Best að láta þá eiga sig.“

Dökki persónuferningurinn

Dökku einkennin fjögur (sjálfhverfa, siðblinda, Makkíavellíanismi og sadismi) eru af allt öðru sauðahúsi en persónuleikaþættirnir fimm þó að þau séu (því miður) genetísk að talsverðu leyti líka, trúlega á bilinu 40-60%. Fyrrnefnd rannsókn okkar í Birmingham leiddi í ljós að þrjú af þessum einkennum hafa mjög sterka neikvæða fylgni við siðferðilega dómgreind; og mælitæki okkar sýnir fram á siðferðilegan skaða þessarara einkenna betur en þekktar mælingar Jonathans Haidt á siðferðilegum grunnþáttum (e. „Moral Foundations Theory“). Það hefði raunar verið reiðarslag fyrir okkur ef mælikvarði okkar á siðferðilegri dómgreind hefði ekki leitt í ljós að siðferðisskyn sé andstætt dökka ferningnum!

Aðrar nýlegar rannsóknir sýna tengsl milli pólitískrar skautunar og þessara fjögurra dökku einkenna, þó að þær svari ekki spurningunni hvers vegna skautunin aukist sífellt þó að þessi fjögur einkenni hafa væntanlega fylgt mannkyninu (erfðafræðilega og samfélagslega) frá alda öðli. Hvað sem því líður þá gildir allt annað um dökka ferninginn en stóru persónueinkennin fimm: Vitaskuld ber okkur að reyna að lágmarka dökku einkennin í fari okkar sjálfra og þeirra sem við berum uppeldislega ábyrgð á, að svo miklu leyti sem það er unnt.

Eitt kom okkur samt á óvart í rannsókn okkar. Það reyndist ekki mikil fylgni milli sjálfhverfu og skorts á siðferðilegri dómgreind. Í ljós kom að sumir einstaklingar sem fengu háa heildareinkunn fyrir siðferðilega dómgreind (bæði sjálfmetna og mælanlega hlutlægt) voru líka með tiltölulega hátt skor í sjálfhverfu. Þetta staðfestir ef til vill gamla en umdeilda kenningu Aristótelesar um að helstu velgjörðarmenn mannkyns séu oft sjálflægir og uppteknir af eigin orðspori: „stórmennin“ eða „stórsálirnar“ sem hann nefndi svo („megalopsychos“). Hugmyndin er þá sú að „stórmenni“, á borð við Bill Gates í nútímanum sem ferðast um Afríku til að gefa fátækum skólabörnum fartölvur, séu oft uppteknari af því að „sýnast góðir“ en að „vera góðir“, en til þess að sýnast góðir þurfi þeir vitaskuld að taka siðferðilega burðugar ákvarðanir (út á við). Auðvitað myndu margir segja að slík breytni sé ekki raunverulega siðleg heldur einungis upp á punt – en stundum skipta afleiðingar ákvarðana meiri máli en hinn huldi ásetningur.

Niðurstaða okkar var því sú að þó að þrjú af dökku persónueinkennunum fjórum séu greinilega siðferðilega skaðvæn þá sé sjálfhverfa ekki endilega vísbending um mannvonsku eða lágan siðferðisþröskuld. Það sem skiptir máli er nákvæmlega um hvað sjálfsmynd sjálfhverfu einstaklinganna hverfist (og þeir eru ekki allir eins og Donald Trump).

Höfundur er prófessor í heimspeki við Háskólann í Birmingham.  

#dómgreind #erfðir #siðferði


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27037/erfdir-sidferdi-og-domgreind/

📰 Aðrar fréttir

20 ára deilur Stallone og Schwarzenegger voru „líf og dauði“
📅 24.09.2026 👁️ 0
20 ára deilur Stallone og Schwarzenegger voru „líf og dauði“
Sylvester Stallone hefur tjáið sig umfang deilunnar við Arnold Schwarzenegger, sem stóð yfir í meira en tvo áratugi. Einhverjir hafa talið að deilan h...
Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor - Vísir
Parið byrjaði að slá sér upp árið 2018 eftir að systir hans kynnti þau. Þau trúlofuðu sig árið 2021 og gengu í hjónaband í nóvember 2022. Þar tók hún ...
Allt kemur í ljós ef maður á geisla­drif - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Allt kemur í ljós ef maður á geisla­drif - Vísir
Þeir sem vilja taka tónlistina með sér heim þurfa hins vegar að eiga geislaspilara, því platan verður fyrst um sinn ekki aðgengileg á netinu. Það er g...
Telur kosninga­svik ekki hafa á­hrif á stjórnar­myndun - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Telur kosninga­svik ekki hafa á­hrif á stjórnar­myndun - Vísir
Sænska lögreglan rannsakar ásakanir um að fólki hafi verið borgað fyrir að greiða lítt þekktum frambjóðanda Vinstriflokksins atkvæði í persónukjöri í ...
County Durham breast cancer failure bosses to review 4,500 more cases
📅 24.09.2026 👁️ 0
County Durham breast cancer failure bosses to review 4,500 more cases
Hospital chiefs in County Durham agree to a review after failings including unnecessary surgeries.
Daniel Thomas arrested over video of dinghy slashing
📅 24.09.2026 👁️ 0
Daniel Thomas arrested over video of dinghy slashing
Police had been looking into footage appearing to show the man, also known as Danny Tommo, slashing at a boat in the English Channel with a knife.
Vopnaútköllum sérsveitarinnar fjölgað mikið en mönnun stendur í stað
📅 24.09.2026 👁️ 0
Vopnaútköllum sérsveitarinnar fjölgað mikið en mönnun stendur í stað
Fjöldi vopnaútkalla sérsveitar ríkislögreglustjóra hefur sjöfaldast frá árinu 2014 og voru 424 í fyrra. Mönnun hefur hins vegar lítið breyst frá 2008....
Fjöldi vopnaútkalla sjöfaldaðist en mönnun stendur í stað
📅 24.09.2026 👁️ 0
Fjöldi vopnaútkalla sjöfaldaðist en mönnun stendur í stað
Fjöldi vopnaútkalla sérsveitar ríkislögreglustjóra hefur sjöfaldast frá árinu 2014 og voru 424 í fyrra. Mönnun hefur hins vegar lítið breyst frá 2008....
Sjö­falt fleiri út­köll en sami fjöldi sérsveitarmanna - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Sjö­falt fleiri út­köll en sami fjöldi sérsveitarmanna - Vísir
Áætlaður kostnaður við að fylla upp í þessi tíu stöðugildi yrði þrjú til fjögur hundruð milljónir króna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri gr...
Veðurfræðingur um stöðuna í morgunsárið: „Nú er mjög djúp lægð að nálgast landið“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Veðurfræðingur um stöðuna í morgunsárið: „Nú er mjög djúp lægð að nálgast landið“
Gular viðvaranir taka gildi ein af annarri víða á landinu í dag og segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands að hyggilegt sé að tryggja lausamuni. Þá ...
Høiby skiptir um verj­endur - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Høiby skiptir um verj­endur - Vísir
VG greinir frá og ræðir við Alexander Greaker, annan verjandanna. Hann og Daniel Storrvik munu reyna að fá Høiby sýknaðan í febrúar þegar málin verða ...
Veturinn verði Rússum erfiður - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Veturinn verði Rússum erfiður - Vísir
Úkraínumenn hafa áhyggjur af því að Rússar ætli sér að gera enn og aftur árásir á orkuver, dreifikerfi og hita- og vatnsveitur Úkraínu í vetur. Þessar...
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt
📅 24.09.2026 👁️ 0
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son og sjö aðr­ir þing­menn reyna nú aft­ur að af­nema erfða­fjárskatt. Þau v...
Rústir miðaldakirkju fundust á Grænlandi
📅 24.09.2026 👁️ 0
Rústir miðaldakirkju fundust á Grænlandi
Beinagrind sem fannst við fornleifauppgröft á Grænlandi í sumar staðfestir kenningar fræðimanna um að rústir sem eru þar nærri séu kirkjurústir. Ritza...
Djúp lægð nálgast landið og viðvaranir í gildi
📅 24.09.2026 👁️ 1
Djúp lægð nálgast landið og viðvaranir í gildi
Mjög djúp lægð nálgast landið úr suðri, segir í morgunpistli frá Veðurstofu Íslands.Það gengur í austan hvassviðri víða um land með morgninum og sunna...
Þú trúir ekki hvað lög­reglan gerði við sönnunar­gagnið - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Þú trúir ekki hvað lög­reglan gerði við sönnunar­gagnið - Vísir
„Sæll, ástin mín,“ sagði Mary, þegar Patrick steig inn um dyrnar. „Sæl, ástin,“ svarað hann á móti. Hún blandaði handa honum viskí. Hann þambaði það í...
Greiðir sér hálfan milljarð í arð - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Greiðir sér hálfan milljarð í arð - Vísir
Rekstrartekjur félagsins voru rúmar sex hundruð milljónir og rekstrargjöld 143 milljónir. Eftir skatta og önnur gjöld var hagnaðurinn 340 milljónir sa...
Þorsteinn Pálsson skrifar: Íslenskt sjónarhorn á Grænlandssamninginn
📅 24.09.2026 👁️ 1
Þorsteinn Pálsson skrifar: Íslenskt sjónarhorn á Grænlandssamninginn
Grænlandssamningurinn er birtingarmynd nýs veruleika í alþjóðamálum. Fyrir Grænland skapar hann ró, að minnsta kosti um tíma. Hann er jafnframt sigur ...
„Eins og lítil falleg blóm sem eru að opna sig í moldviðri“
📅 24.09.2026 👁️ 1
„Eins og lítil falleg blóm sem eru að opna sig í moldviðri“
„Ég vil nú bara efast um að margt af þessu fólki sé í raun og veru með hag barnanna í huga,“ segir Ragnar Bjarnason, innkirtlalæknir barna, þegar hann...
Færri þunganir í á­hættu­hópi með nýrri tegund fósturskimunar - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Færri þunganir í á­hættu­hópi með nýrri tegund fósturskimunar - Vísir
Fósturerfðaskimunin, NIPT, verður í boði fyrir allar konur að lokinni 12 vikna skoðun. Í tólf vikna skoðun er meðgöngulengd metin og fjöldi fóstra ath...
Rigning og vindur - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Rigning og vindur - Vísir
Það dregur víða úr vindi seinnipartinn en gengur þá í norðaustan, fimmtán til 23 metrar á sekúndu á Vestfjörðum. Hiti fimm til ellefu stig.  „Suðvesta...
Bannaði Trump að banna fjöl­miðla - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Bannaði Trump að banna fjöl­miðla - Vísir
Um er að ræða miðlana CNN, MS NOW og Politico. Dómstóllinn gaf út tímabundinn lögbannsúrskurð sem þýðir að miðlarnir þrír skulu fá aðgangsheimildir sí...
Barnið ekki í við­eig­andi öryggis­búnaði - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Barnið ekki í við­eig­andi öryggis­búnaði - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir verkefni embættisins frá klukkan fimm í gær til fimm í nótt.  Nokkrir voru stöðvaðir vegna hr...
„Mjög stór og mikil­væg niður­staða fyrir okkur“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
„Mjög stór og mikil­væg niður­staða fyrir okkur“ - Vísir
Samkvæmt endurskoðuðu áhættumati eru forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík ásættanlegar, að því gefnu að skilgreindar öryggisfor...
Judge temporarily overturns Trump's White House media ban
📅 24.09.2026 👁️ 3
Judge temporarily overturns Trump's White House media ban
A court has ordered the US government to reinstate access to the building for CNN, Politico and MS NOW.
Police arrest 36 in raids on Vietnamese crime gangs across Scotland
📅 24.09.2026 👁️ 0
Police arrest 36 in raids on Vietnamese crime gangs across Scotland
About 300 officers took part in simultaneous early-morning raids at 47 sites across Scotland.
NHS staff investigated over access to dead teenager's medical records
📅 24.09.2026 👁️ 3
NHS staff investigated over access to dead teenager's medical records
Oliver McGowan, who died in 2016, may have had his medical records accessed inappropriately after his death by NHS staff in Bristol.
Prison staff told not to use inadequate cells as overcrowding worsens
📅 24.09.2026 👁️ 3
Prison staff told not to use inadequate cells as overcrowding worsens
Workers tell BBC they are increasingly having to put two inmates in single occupancy cells because of overcrowding.
Forseti Kína og frú í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum
📅 24.09.2026 👁️ 3
Forseti Kína og frú í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum
Xi Jingping forseti Kína og eiginkona hans Peng Liyuan komu í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna í gær. Donald Trump Bandaríkjaforseti tók á móti þei...
Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan
📅 24.09.2026 👁️ 2
Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan
Pakistanski herinn gerði loft- og drónaárásir á tíu mismunandi stöðum í Afganistan í nótt.Ráðherra upplýsingamála í Pakistan, Attaullah Tarar, greindi...
Trump offers warm welcome as China's Xi arrives for US visit
📅 24.09.2026 👁️ 3
Trump offers warm welcome as China's Xi arrives for US visit
The US treasury secretary said that the US and China had reached an agreement to extend a trade truce as Xi began his visit.
Bandaríkin leggja 267 milljónir dala til baráttu gegn ebólu
📅 24.09.2026 👁️ 2
Bandaríkin leggja 267 milljónir dala til baráttu gegn ebólu
Bandaríkjastjórn ætlar að leggja til aukaframlag upp á 267 milljónir dala til baráttunnar gegn ebólaveiru í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Greint var fr...
ÖSE verður ekki með kosningaeftirlit í Bandaríkjunum
📅 24.09.2026 👁️ 3
ÖSE verður ekki með kosningaeftirlit í Bandaríkjunum
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, verður ekki boðið að fylgjast með þingkosningum í Bandaríkjunum í nóvember næstkomandi. Frá þessu er greint í...
They were labelled 'pervert glasses'. Will a camera-free version transform their image?
📅 24.09.2026 👁️ 3
They were labelled 'pervert glasses'. Will a camera-free version transform their image?
Meta has unveiled audio-only smart glasses, with some questioning whether it is a response to the backlash over privacy.
Eight US sailors in USS Abraham Lincoln strike group attempted suicide, Navy says
📅 24.09.2026 👁️ 3
Eight US sailors in USS Abraham Lincoln strike group attempted suicide, Navy says
In a letter to Senator Kirsten Gillibrand, acting Navy Secretary Hung Cao said the crew had adequate mental health support during the long deployment.
Oleshky: Residents eating garden weeds in Russian-occupied city cut off from food and water
📅 23.09.2026 👁️ 3
Oleshky: Residents eating garden weeds in Russian-occupied city cut off from food and water
The BBC has spoken to residents in the Russian-occupied Ukrainian town of Oleshky who say they are being "constantly shelled".
„Hér er bara hjartað, það er í Grindavík“
📅 23.09.2026 👁️ 6
„Hér er bara hjartað, það er í Grindavík“
Hjartað er hér segir Gísli Grétar Sigurðsson Grindvíkingur sem fagnar endurreisnarumræðu stjórnvalda. Hann vonast að sem flestir snúi til baka og finn...
Gervi­greind hakkaði sig inn á vef stjórn­valda - Vísir
📅 23.09.2026 👁️ 4
Gervi­greind hakkaði sig inn á vef stjórn­valda - Vísir
Hann greindi frá þessu í dag er hann ræddi við fréttamenn á hliðarlínum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem var sett í New York í vikunni. „Þetta a...
Ekki von á frekari aðgerðum til að lækka eldsneytisverð
📅 23.09.2026 👁️ 4
Ekki von á frekari aðgerðum til að lækka eldsneytisverð
Íslensk stjórnvöld lækkuðu í vor virðisaukaskatt á eldsneyti vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs og lækkaði lítrinn af bensíni og dísil um 26 til 32 krón...
A red carpet and military flyover - How Trump welcomed Xi
📅 23.09.2026 👁️ 3
A red carpet and military flyover - How Trump welcomed Xi
The two B-1 bombers that flew overhead are a key part of the US's combat arsenal, and produce a notoriously loud roar when they pass by.
Segja upp tveimur sér­fræðingum - Vísir
📅 23.09.2026 👁️ 4
Segja upp tveimur sér­fræðingum - Vísir
Margrét Erlendsdóttir, upplýsingafulltrúi heilbrigðisráðuneytisins, staðfestir þetta í samtali við Vísi en Rúv greindi fyrst frá. Hún segir að greint ...
RAF Valley: What video footage tells us about training jet crash
📅 23.09.2026 👁️ 7
RAF Valley: What video footage tells us about training jet crash
The RAF said training on their Hawk jets had been "temporarily" paused while an investigation is under way.
Mannleg mistök þegar stíflueyðir og þrifaefni bönduðust saman
📅 23.09.2026 👁️ 4
Mannleg mistök þegar stíflueyðir og þrifaefni bönduðust saman
Komin er nokkuð skýr mynd af því hvað olli efnaleka í fiskvinnslu á Óseyri á Akureyri í dag. Klórgas myndaðist þegar stíflueyðir blandaðist við annað ...
OpenAI agent 'infiltrated' Australian government website, PM says
📅 23.09.2026 👁️ 4
OpenAI agent 'infiltrated' Australian government website, PM says
Albanese said he expressed "concern" to OpenAI founder Sam Altman, after authorities were informed three months after the breach in June.
Tekin á teppið fyrir klæðaburð í dómsal – Er þessi kjóll óviðeigandi?
📅 23.09.2026 👁️ 4
Tekin á teppið fyrir klæðaburð í dómsal – Er þessi kjóll óviðeigandi?
Bandarískur lögmaður segist hafa verið niðurlægður fyrir framan kollega sína og sakborninga þegar dómari gerði athugasemd við klæðaburð hennar í dómsa...
Skorið verulega niður í framkvæmdum hjá Hveragerðisbæ eftir skýrsluna kolsvörtu - Áætluð rekstrarniðurstaða versnar um nærri milljarð
📅 23.09.2026 👁️ 4
Skorið verulega niður í framkvæmdum hjá Hveragerðisbæ eftir skýrsluna kolsvörtu - Áætluð rekstrarniðurstaða versnar um nærri milljarð
Bæjarstjórn Hveragerðis hefur sammælst um að skera töluvert niður í fjárfestingum þessa árs. Er þá aðallega skorið niður í framkvæmdum sem átti að ráð...
Banda­rísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í mið­bænum - Vísir
📅 23.09.2026 👁️ 4
Banda­rísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í mið­bænum - Vísir
Það eru listakonurnar í Kirsuberjatréinu á Vesturgötu sem greina frá því að leikarinn hafi sótt þær heim í dag. Hann kíkti við í listabúðinni í hádegi...
New vocational GCSE subjects to be introduced in schools
📅 23.09.2026 👁️ 4
New vocational GCSE subjects to be introduced in schools
New GCSE subjects could include child development and building and construction as vocational courses are being introduced.
Hafa nokkrar vikur til að koma starfsemi SÁÁ í eðlilegt horf
📅 23.09.2026 👁️ 4
Hafa nokkrar vikur til að koma starfsemi SÁÁ í eðlilegt horf
Alma Möller heilbrigðisráðherra segir þá stöðu sem uppi sé innan SÁÁ vonbrigði, traust á stjórn SÁÁ hafi beðið hnekki.„Það er ekkert útilokað fyrir st...
Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Ós­eyri - Vísir
📅 23.09.2026 👁️ 4
Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Ós­eyri - Vísir
„Þetta leit ekki vel út í byrjun og svona aðgerð er meira langhlaup heldur en spretthlaup, en þetta fór allt vel að lokum,“ segir Maron Pétursson vara...