Nokkrir eftirskjálftar hafa komið í kjölfarið en þeir hafa allir verið mun minni. Sigríður Kristjánsdóttir náttúrvársérfræðingur segir skjálfta sem þessa koma með reglulegu millibili í öskjunni nú þegar hún sé að fyllast af kviku.
„Það hafa reglulega verið að koma skjálftar þarna í öskjunni undanfarin misseri þannig að þetta kemur okkur þannig séð ekkert á óvart,“ segir Sigríður. Hún bætir við að síðast hafi álíka skjálfti komið 13. júní síðastliðinn og þar áður 31. janúar. Allir hafi þeir verið um 5 stig að stærð.
Sigríður segir að þrátt fyrir stærð skjálftanna séu þeir það langt uppi á hálendi að engar tilkynningar hafi borist um að þeir hafi fundist í byggð, ólíkt skjálftanum í gær við Nesjavelli sem fannst víða um land þrátt fyrir að hafa verið mun minni að stærð.