Neyðarlínan, Fjarskiptastofa og fjarskiptafyrirtæki hafa til skoðunar símtöl frá manni á Skagaströnd sem náði ekki sambandi við Neyðarlínuna í gær, þrátt fyrir að hafa hringt ítrekað. Landsmenn eru hvattir til að hringja í númerið 1280 og kanna hvort símar ná sambandi.
Þetta eru skilaboðin sem þú vilt heyra þegar hringt er í 1280:
„Prófun, neyðarsímtal. Símtalið þitt komst til skila.“
Með því er hægt að kanna hvort samband næst við Neyðarlínuna án þess að valda óþarfa álagi - það á ekki að hringja beint í 112 til að kanna sambandið.
Ef þú heyrir ekki skilaboð um að símtalið hafi komist til skila þá er áríðandi að síminn sé uppfærður eða honum skipt út.
Síðan slökkt var á 2G og 3G sendum hafa Fjarskiptastofu borist margar tilkynningar um að ekki náist símasamband þar sem það náðist áður.
Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segir það alltaf alvarlegt þegar fólk nái ekki sambandi í neyð og málið á Skagaströnd sé því til rannsóknar. Ekki sé vitað enn hvar símkerfið brást.
Kortleggja útbreiðslu símasambands í sumar
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu, segir enn alls óvíst hvort það tengist því að slökkt var á 2 og 3 G sendum.
„Við höfum verið að kortleggja þetta og munum kortleggja þetta með fjarskiptafélögunum, hvað er hægt að gera til að bregðast við þessu ef um minnkun á útbreiðslu er að ræða.“
Þetta stendur til að gera í sumar - en þangað til er talsverð óvissa um hvar sambandið er í ólagi. Ítarleg mæling var síðast gerð hjá Fjarskiptastofu 2023.
„Félögin áttu að gera ráðstafanir“
Hrafnkell segir stöðuna líka síbreytilega, símafélögin hafi verið að bregðast við og fjölga sendum. Útbreiðsla í 4G sendum er um 1-7% minni í dreifbýli en í 3G. Það sé þeirra að tryggja að viðskiptavinir fái ekki lakari þjónustu en var fyrir breytingu.
„Félögin áttu þá að gera ráðstafanir til að vega upp á móti því að á jaðri útbreiðslusvæðis sendanna gæti þjónustan hafa skerst. Þetta var vitað fyrir.“