Dómsmálaráðherra vill bregðast við með því að efla lögreglu, herða aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi og draga úr eftirspurn.
Þá fjöllum við áfram um hvalveiðivertíðina sem nú er í gangi. Dýraverndunarsamband Íslands krefst þess að veiðarnar verði stöðvaðar og vísa meðal annars til hálftíma dauðastríðs hvals sem skotinn var á dögunum.
Einnig fjöllum við um bensínverðið en framkvæmdastjóri FÍB segir álagningu eldsneytis hvergi í heiminum meiri en hér á landi.
í sportpakkanum förum við yfir úrslitin á HM en heyrum einnig í Elísu Kristinsdóttur sem á dögunum sigraði sterkt mót í utanvegahlaupi á Ítalíu.