Frá þessu greinir á Facebook-síðu Herjólfs.
Að þessu sögðu sé stefnt á eina ferð til Landeyjarhafnar seinnipartinn í dag, þar sem lagt verður frá bryggju í Vestmannaeyjum klukkan 18 og frá Landeyjahöfn klukkan 20:15.
Á morgun sé stefnt að því að sigla til Landeyjahafnar klukkan 7 og 18 og frá Landeyjahöfn klukkan 9 og 20:15.
Enn sé unnið að dýpkun og almenningur verði upplýstur um þróun mála eins fljótt og auðið verður.