Þetta staðfestir Sigurður A. Jónsson, slökkviliðsstjóri á Ísafirði, en hann greinir einnig frá því að bíllinn hafi oltið alveg niður af veginum og niður að sjó. Einn þeirra þriggja, tveir farþegar og einn bílstjóri, sem voru í bílnum hafi hringt eftir aðstoð.
Þá segir hann að ekki hafi þurft að loka veginum en bílflakið hafi verið flutt á Ísafjörð.
„Þeir eru ekki í neinni lífshættu heldur aðallega bara hruflaðir, marðir og frekar litlir í sér eftir þetta,“ segir Sigurður í samtali við blaðamann Vísis. Þeir voru fluttir á Ísafjörð til aðhlynningar.