JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, segir að Bandaríkin ætli ekki að ræða við írönsk stjórnvöld um endalok stríðsins í Íran fyrr en Íranar hætti að ráðast á kaupskip í og við Hormússund.
Í samtali við blaðamenn í Hvíta húsinu í kvöld sagði Vance forseta Bandaríkjanna hafa sagt þetta með mjög skýrum hætti.
Hann sagði að varla væri um stríð að ræða, þar sem átök væru ekki viðvarandi. Hann sagði stefnu Bandaríkjanna í stríðinu við Íran virka og að skip sigldu um Hormússund með mikið magn olíu. 15 milljónir tunna af olíu hafi farið um sundið í gær.
Á mánudag gerði Bandaríkjaher árásir á hernaðarlega innviði Írana nærri Hormússundi. Það voru fyrstu árásir Bandaríkjahers í rúman mánuð.
Vance sagði í kvöld mikilvægt að Bandaríkin gætu fengið sína orku frá mörgum ólíkum stöðum og lofsamaði nýjan olíusamning við Venesúela.
Þá gagnrýndi hann bandamenn í Evrópu fyrir að hafa ekki komið til aðstoðar við að reyna að ná jafnvægi á alþjóðlegum orkumörkuðum.
„Hvers vegna hvílir það á herðum Bandaríkjanna að vera eina landið í heiminum sem getur í raun og veru tryggt framboð á alþjóðlegum orkumörkuðum?“ sagði Vance.