Engar hópuppsagnir voru tilkynntar til Vinnumálastofnunar í apríl síðastliðnum. Þetta segir í tilkynningu á vef stofnunarinnar.
Vinnumálastofnun hafa borist sjö tilkynningar um hópuppsagnir það sem af er ári.
Í mars misstu 90 vinnuna í þremur hópuppsögnum. Þá bárust tilkynningar um tvær hópuppsagnir í febrúar þar sem 69 var sagt upp störfum. Í janúar voru hópuppsagnir tvær og var 84 sagt upp.