Flugskeyti var í nótt skotið að olíuflutningaskipi á Hormússundi um 78 sjómílur, rúma 144 kílómetra, undan strönd Sameinuðu arabísku furstadæmanna, skömmu eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að herinn myndi síðar í dag hefja fylgdarsiglingar gegnum sundið.
Einnig var tilkynnt um árás nokkurra smábáta á flutningaskip skammt frá strönd Írans. Breska siglingamálastofnunin greindi frá árásunum og sagði áhafnir beggja skipa ómeiddar.
Stofnunin hvetur sjófarendur til varkárni meðan yfirvöld rannsaka árásina. Íranar hafa haldið Hormússundi lokuðu frá upphafi stríðsins og herskip Bandaríkjanna framfylgja hafnbanni á móti.
Miðstjórn Bandaríkjahers hefur tilkynnt að fjölda herskipa og flugvéla ásamt fimmtán þúsund manna herliði sé ætlað að fylgja flutningaskipum gegnum Hormússund. Íransstjórn segir fyrirætlunina brot á vopnahlénu sem tók gildi snemma í apríl.
Ríflega 900 flutningaskip voru innlyksa á Persaflóa í apríllok samkvæmt upplýsingum AXSMarine, sem fylgist með skipaferðum um víða veröld. Skipin voru um 1.100 þegar Ísraelar og Bandaríkin hófu árásir á Íran 28. febrúar.
Fréttin var uppfærð með upplýsingum um árás smábáta á flutningaskip.