Er þetta meðal þess sem kemur fram í fréttatilkynningu um komu skipsins sem ber nafnið Energy Observer og er fyrsta vetnisknúna skip heims. Skipið komi hingað til lands frá Port-La-Nouvelle í Frakklandi.
Heimsókn skipsins til Íslands ítreki „að grænt vetni, framleitt með endurnýjanlegri orku, er raunhæf lausn til að draga úr kolefnislosun í sjóflutningum, sem er lykilþáttur í samgöngum á Íslandi,“ segir í tilkyninngunni.
Ísland sé enn háð innflutningi á olíu sem nýtist í samgöngur og rekja megi sextíu prósent koltvísýringslosunar landsins til sjóflutninga, flugs, fiskveiða og vegasamgangna.
Fyrirtækið Qair, sem sérhæfi sig í rekstri verkefna sem byggi á endurnýjanlegri orku og framleiðslu vetnis og ammóníaks, hafi afhent skipinu fyrstu sameindina af grænu vetni sem hafi verið framleidd í stærstu vetnisframleiðslustöð Frakklands.
Tryggvi Þór Herbertsson, stjórnarformaður Qair á Íslandi, sagði í kvöldfréttum á RÚV í gær að raunhæfur möguleiki sé að innan fárra ára verði íslensk fiskiskip knúin með ammoníaki. Það þýði að Íslendingar verði sjálfum sér nægir um endurnýjanlega orku.