Einn lést og sextán særðust í árás á hinsegin daga í Berlín á laugardaginn. Borgarstjóri Amsterdam tilkynnti í gær að það yrði strangari öryggisgæsla á Hinsegin dögum í borginni og skipuleggjendur hátíðarinnar í Prag hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir ítreka að öryggi þátttakenda verði í öndvegi.
Hinsegin dagar á Íslandi eru 4.–9. ágúst og gleðigangan verður 8. ágúst.
Í skriflegu svari embættis ríkislögreglustjóra við fyrirspurn fréttastofu segir að áhættumat sé til endurskoðunar í samráði við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Ekki liggi fyrir hvort breytingar verði gerðar á því.
Hræðilegt hryðjuverk
Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga, segir árásina hræðilegt hryðjuverk og segir stjórnendur hátíðarinnar á Íslandi hafa sent samúðarkveðjur til Þýskalands.
Hún skilji að árásin geti vakið óhug hjá fólki í aðdraganda hátíðarinnar hér á landi en segir að vel verði gætt að öryggi líkt og árin á undan.
Varðandi öryggismál þá höfum við verið í mjög góðu samtali við lögregluna undanfarin ár og það verður engin breyting á því.
Bera höfuðið hátt og sameinast undir regnboganum
Þetta sé því miður ekki í fyrsta sinn sem hryðjuverkaárás sem þessi beinist að hinsegin fólki og nefnir hún sem dæmi árás á skemmtistað í Orlando í Bandaríkjunum árið 2016 og árás á Hinsegin daga í Osló í Noregi árið 2022.
Skipuleggjendur Hinsegin daga láti það þó ekki stoppa sig.
Við mætum á laugardaginn og göngum gleðigönguna og berum höfuðið hátt. Slagorð hinsegin daga í ár er sameinust undir regnboganum og það munum við svo sannarlega gera.