Franska lögreglan hefur endurheimt 2.500 ára gamalt hálsmen úr skíragulli sem stolið var úr Pays Châtillonnais-safninu í Búrgund-Franche-Comté-héraði á föstudag. Einn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn málsins.
Þetta kom fram á blaðamannafundi Catherine Pégard, menningarmálaráðherra Frakklands, í gær þegar hún kynnti nýja öryggisstefnu fyrir opinber söfn.
Þjófnaðurinn sem átti sér stað á föstudagsmorgun var mikið áfall fyrir safnafólk í Frakklandi. Hálsmenið, sem vegur 480 grömm og er úr 24-karata gulli, fannst við fornleifauppgröft nærri þorpinu Vix árið 1953. Það er talið vera frá sjöttu öld fyrir Krist og hafa tilheyrt keltneskri prinsessu.
Í fornleifauppgreftrinum fundust einnig grískur vasi frá sama tíma og silfurvasi sem er sá elsti sem fundist hefur norðan Alpafjalla.
Á fundi Pégard kom fram að verja eigi 30 milljónum evra í uppfærðan öryggisbúnað á söfnum landsins. Það eru nærri 4,3 milljarðar króna.
Í október komust þjófar á brott með ómetanlega skartgripi úr Louvre-safninu í París. Þá var verðmætum kristalsskartgripum stolið úr Lalique-safninu í norðausturhluta landsins fyrr í þessum mánuði.