Harry Bretaprins mistókst hrapalega það markmið sitt að losna undan sviðsljósinu og ágangi fjölmiðla með því að segja sig frá konunglegum skyldum og flytja til Bandaríkjanna. Það hjálpaði lítið að stíga fram í frægu viðtali hjá spjallþáttadrottningunni Oprah, þar sem hann opnaði sig um lífið í konungsfjölskyldunni og ekki bætti það svo úr skák að fylgja viðtalinu eftir með æviminningum, heimildarþáttum á Netflix og frægum málaferlum gegn breskum fjölmiðlum sem og breska ríkinu sem hafði neitað honum um konunglega öryggisgæslu í Bretlandsheimsóknum.
Endalaust drama í tengslum við Bretlandsheimsókn umdeilda prinsins