Enginn er talinn slasaður en lögregla biðlar til ökumanna um að aka varlega í umferðinni, sérstaklega þegar kemur að framúrakstri. Ekki eigi að taka fram úr nema öruggt sé og þegar alvöru þörf er á.
Veistu meira um málið? Áttu myndir? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglunni barst einnig tilkynning um vasaþjófnað við Hallgrímskirkju. Meintir þjófar fundust ekki. Lögregla biður fólk um að hafa augun opin á helstu ferðamannastöðum borgarinnar.
Álíka mál hafa komið upp á vinsælum ferðamannastöðum úti á landi.
Nokkur útköll bárust vegna slagsmála í miðbæ Reykjavíkur og sinnti lögreglan einnig hávaðakvörtunum, þá helst samkvæmishávaða.
Veistu meira um málið? Áttu myndir? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.