Ónafngreindur embættismaður í Hvíta húsinu hefur gefið helstu fjölmiðlum upplýsingar um innihald samnings Bandaríkjanna og Íran sem er í nokkru ósamræmi við það sem birtist í íranska ríkisfjölmiðlinum í morgun.
Þar kom meðal annars fram að Íran fengi áfram að auðga úran, að þeir héldu áfram stjórn á Hormússundi og að frystingu eigna yrði aflétt.
Samkvæmt Hvíta húsinu eru helstu efnisatriði þau að Íranar samþykkja að hætta kjarnorkuáætlun sinni og eyða öllum kjarnorkuefnum sínum. Hormússund verður opnað á ný, engum frystingum íranskra fjármuna verður aflétt fyrr en þeir sýna í verki að þeir standi við samninginn og Íranar hætta að fjármagna hryðjuverkahópa.
Embættismaðurinn sagði jafnframt að framvinda samningsins byggðist á því hvernig Íranar standa sig í að fylgja honum.
Abbas Araqchi utanríkisráðherra Íran sagði í dag að samningur hefði aldrei verið eins nærri og núna. Hann hvatti hins vegar fjölmiðla til að halda öllum hugleiðingum um innihaldið í lágmarki þangað til samningi hefði verið lokið. Það yrði birt þegar þar að kæmi.