Í færslunni sem Eliza Reid birti á Facebook-síðu sinni segir að hún og nokkur Erica Jacobs Green, sem stofnaði með henni Iceland Writers Retreat , hafi reglulega grínast með það hversu gaman það væri ef tveir gestir ritsmiðjunnar myndu fella saman hugi, gifta sig og bjóða þeim loks í brúðkaupið.
Sú varð svo raunin á dögunum en rithöfundurinn og baráttukonan Þórdís Elva Þorvalsdóttir og hennar heittelskaða, kanadíska söngkonan Jenn Arden, gengu í það heilaga um helgina.
„Það sem meira er, þetta var kanadísk-íslenskt par, uppáhalds blandan mín. Endalausar hamingjuóskir til Jann Arden og Þórdísar Elvu. Takk fyrir að leyfa mér að vera með ykkur á þessum sérstaka degi.“
Arden er ein þekktasta söngkona Kanada, meðal annars fyrir lögin „Insensitive“, sem varð hennar stærsti smellur, „Could I Be Your Girl“, „Cherry Popsicle“ og „I Would Die for You“. Hún hefur einnig gefið út metsölubækur.