Eldsneyti skammtað á rússneskum bensínstöðvum
Búið er að takmarka eldsneytiskaup við 30 lítra af bensíni á mann og 60 lítra af dísilolíu á hundruðum eldsneytisstöðva í Rússlandi. Drónaárásir Úkraínumanna hafa dregið úr olíuhreinsunargetu í Rússlandi.
Rússneski olíuframleiðandinn Tatneft hefur tekið upp eldsneytisskömmtun á hundruðum bensínstöðva víðs vegar um landið, að því er AFP fréttastofan komst að á þriðjudag, þar sem aukin árásaralda Úkraínumanna hefur dregið úr olíuhreinsunargetu Rússlands.
Stjórnvöld í Kænugarði hafa hert drónaárásir á olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi sem vinna hráolíu í eldsneyti á borð við bensín og dísilolíu, þar á meðal árás á þriðjudag sem hæfði stóra verksmiðju rétt fyrir utan Moskvu.
Stjórnvöld í Úkraínu kalla árásir á orkumannvirki „langdrægar refsiaðgerðir“ og segja þær miða að því að draga úr tekjum sem Rússland notar til að fjármagna stríðið.
Starfsmaður í þjónustuveri Tatneft, fimmta stærsta olíufyrirtækis landsins, sagði við AFP í síma á þriðjudag: „Já, það er 30 lítra hámark af bensíni á mann og 60 lítra hámark af dísilolíu.“
Takmarkanirnar voru teknar upp á um 800 bensínstöðvum Tatneft og óljóst var hversu lengi þær myndu vara, sagði starfsmaðurinn.
Fyrirtækið ráðlagði viðskiptavinum að greiða …