Ólafur Brynjar Bjarkason, skrifstofustjóri leikskólamála Reykjavíkurborgar, segir það ekki óeðlilegt að skólastjóri leikskólans Ægisborgar hafi ekki verið upplýstur um áform um að rífa húsnæði skólans og byggja nýtt á sömu lóð.
Ásmundur Kristberg, skólastjóri Ægisborgar, vildi ekki veita fréttastofu viðtal en staðfesti hann hafi ekki vitað af áformunum.
Ólafur Brynjar segir að það sé borgarstjórnar ásamt umhverfis- og skipulagsráði að taka ákvörðun um slíkar framkvæmdir. Leikskólastjórar séu hins vegar hafðir með í ráðum þegar kemur að atriðum eins og hönnun og kaupum á tækjum og áhöldum. Hann sagði ákvörðunina ekki tekna fram hjá Ásmundi og að algjör endurnýjun á húsnæðinu hafi staðið til í nokkur ár.
Morgunblaðið sagði frá því í gærmorgun að borgaryfirvöld hefðu samþykkt að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi lóðarinnar. Í tillögunni felst að heimilt verði að rífa eldri byggingu á lóð, að hluta til eða öllu leyti, og að á lóðinni rísi átta deilda leikskóli sem getur tekið á móti allt að 160 börnum í stað fjögurra deilda leikskóla þar sem nú eru 75 börn.
Síðasta sumar fannst mygla í húsnæði skólans. Hluti starfseminnar var þá færður í húsnæði Hagaborgar á meðan á viðhaldi á aðalbyggingu Ægisborgar stendur. Öll starfsemin mun aftur flytja á Ægisborg í haust, að sögn Ólafs
Starfsemi Hagaborgar hefur sjálf verið færð undir Grandaborg en áætlað er að Hagaborg verði lokað frá og með 1. september næstkomandi vegna mikillar viðhaldsþarfar. Húsnæðið innan Hagaborgar sem hýsir starfsemi Ægisborgar er þó nýtt.
Þá eru fimm ár síðan ráðist var í gagngerar endurbætur á húsnæði Ægisborgar vegna myglu og rakaskemmda. Skólanum var lokað á meðan.
Algjör endurnýjun lengi staðið til
Ólafur segir að lengi hafi staðið til að ráðast í algjöra endurnýjun á húsnæði leikskólans. Í skýrslu spretthóps um leikskólauppbyggingu sem kom út í maí 2025 er lagt til að nýtt leikskólahúsnæði rísi á lóð leikskólans Ægisborgar. Verklok eru áætluð árið 2029, samkvæmt skýrslunni.
Þrátt fyrir að í skýrslunni séu gefin upp áætluð verklok sagði Ólafur að áformin um niðurrif og endurbyggingu Ægisborgar væru „framtíðarmúsík“ og alls óvíst hvenær af þeim verður. Ekki sé búið að fjármagna verkefnið og það ekki komið inn á fjárfestingaáætlun. Hann segir að fólk sé rólegt þangað til ákvörðun sé tekin.