Ekki gott að mögu­leg lög­brot hafi fengið að malla árum saman dr - Vísir

Ekki gott að mögu­leg lög­brot hafi fengið að malla árum saman dr - Vísir

Ekki gott að mögu­leg lög­brot hafi fengið að malla árum saman dr - Vísir

Frá árinu 2020 hefur netverslunum með áfengi fjölgað ört á Íslandi en í dag bjóða um tuttugu fyrirtæki áfengi til sölu til einstaklinga. Mikil umræða hefur skapast um þessi mál að undanförnu en meðal annars sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi fjármálaráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, sagði að óskiljanlegt væri að netsala með áfengi vaxi nú þegar dómur sé fallinn um að hún sé ólögleg. Hann kallaði eftir því að starfsemin yrði stöðvuð strax og að ríkisstjórnin tali skýrt í málinu.

Í apríl féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness um að áfengissala eins þessara fyrirtækja, eða Smáríkisins, væri smásala og brot á einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi. Málinu hefur verið áfrýjað til Landsréttar.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir segir að hún hafi tekið eftir því að kallað hafi verið eftir því að dómsmálaráðherra beiti sér gagnvart lögreglu með einhverjum hætti í þessum efnum. Þorbjörg var til viðtals í Sprengisandi en þar ræddi hún bæði fyrirkomulag á sölu áfengis og starfsemi erlendra veðmálafyrirtækja á Íslandi. 

Þorbjörg segir dómsmálaráðherra ekki geta svarað fyrir einstaka mál heldur þurfi lögregla að svara fyrir eigin ákvarðanir. „Það er auðvitað þannig að ráðherra er ekki að beita sér í einstökum málum eða siga lögreglu á einstaka aðila.“

„Ef fólk hefur áhuga á að fá fram hvers vegna lögregla sé ekki að beita sér eða hvað lögregla er að gera, ef nokkuð, þá verður lögregla auðvitað að svara því. Ráðherra er í almennri stefnumörkun og almennu samtali við lögregluna en ekki að vasast í einstökum málum.“

Lögreglan telji að um refsiverða háttsemi sé að ræða

Þorbjörg segir mál vera fyrir dómstólum þar sem lögregla gefur út ákæru á hendur rekstraraðila áfengisverslana. Í einu slíku hafi aðili verið sakfelldur fyrir brot á einkaleyfi ÁTVR í Héraðsdómi en málið fari nú fyrir Landsrétt. Lögregla haldi mögulega að sér vegna þess að mál séu á milli dómsstiga en meti augljóslega stöðuna sem refsiverða háttsemi, sem henni beri að bregast við. 

„Ég meina dómarar eru auðvitað að dæma í einstökum málum og svo verða stjórnvöld að bregðast við í kjölfarið og þá vaknar spurningin: Er þetta hin endanlega niðurstaða? Nei, málið fer fyrir Landsrétt. Þar munum við fá endanlegt svar við því. Ég geri svona frekar ráð fyrir því að lögregla sé, ef hún er ekki í aðgerðum núna, kannski að halda að sér höndum vegna þess að þetta er á milli dómstiga.

„Svo má velta því fyrir sér: er eðlilegt á meðan endanleg niðurstaða dómstóla er ekki fram komin að lögregla sé þá á meðan ekki í rassíum gagnvart öllum þessum aðilum?“

Lögregla verði að svara fyrir aðgerðir sínar, eða frekar skort þar á, sjálf. Verði endanleg niðurstaða dómstóla að fyrirtæki séu að brjóta einkaleyfi ÁTVR bregðist löggjafavaldið við með viðeigandi hætti. Þá þurfi að ramma löggjöfina inn með skýrum hætti. 

„En þegar endanleg niðurstaða Landsréttar er fram komin þá vaknar aukin ábyrgð stjórnvalda um að svara því.“

Finnst þér að það eigi að gera í þessu? Ertu þeirrar skoðunar að, óháð þessu staka máli, eigi bara að lögleiða þessa starfsemi sem nú er?

„Ég er frjálslyndismaður í þessu. Ég er þeirrar skoðunar að það sé eðlilegt að ramma þessari starfsemi inn með lögum, með ábyrgð, með einhverjum skýrleika.“

Þorbjörg segir þá sem reki slík fyrirtæki hljóti að vera meðvitaða um hvaða áhættu þeir taki með rekstrinum enda sé málið sé gríðarlega umdeilt. Landsmenn, sem og stjórnmálaflokkarnir sjálfir, hafi mjög skiptar skoðanir á málinu. 

„Mér finnst mjög vont að horfa upp á það að þessi staða, þessi óvissa, mögulega lögbrot, hafi fengið að malla árum saman. Það er ekki gott.“

Verði að vera trúverðugleiki um hvaða lög gildi í landinu

Einkaleyfi ÁTVR sé skýrt í lögum landsins. Tekist sé á um hvað sé heildsala og hvað sé smásala en nú bíði ríkisstjórnarinnar það verkefni að ramma lögin inn með skýrum hætti. „Þannig að það verður að vera þannig að það sé trúverðugleiki um hvaða íslensku lög gilda.“

Þorbjörg segir einkennilegt að ekki sé búið að svara þeirri spurningu hvar mörkin liggi í þessum efnum. Margræðni skapi óvissu og almenningur spyrji sig hvers vegna ekkert hafi verið gert. Lengi hafi verið rifist um þetta mál innan þingsins en „það fæddist aldrei nein löggjöf.“

„Ég er alveg sammála því að mér finnst einkennilegt að þetta hafi viðgengist þá með þeim hætti að það er ekki búið að svara því hvar mörkin eiga að liggja. Svona hefur þetta verið árum saman. Það er ekki gott því þetta skapar óvissu en það er auðvitað heldur ekki gott fyrir lögreglu að þarna liggur fyrir einhver skilningur á því hver lögin eru og almenningur spyr sig: Hvers vegna hefur ekkert verið gert?“

Sama sé uppi á teningnum þegar kemur að veðmálastarfsemi. Sex félög séu starfandi á þeim markaði, allt saman almannaheillafélög sem hafi tekjur af happdrættismarkaði. Félögin beini tekjunum „inn í mjög uppbyggilega og góða starfsemi sína og við viljum auðvitað verja þá hagsmuni.“

Á sama tíma blasi við að ólöglegar veðmálasíður velti tugum milljóna og talið sé að Íslendingar hafi veðjað um sjö milljörðum króna í tengslum við heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fór fram fyrr í mánuðinum. Tölur sýni að Ísland sé eftirbátur hinna Norðurlandanna en á Íslandi sé lítið sem ekkert eftirlit með slíkumsíðum og því hafi stjórnvöld litla innsýn í hvað sé að gerast. 

Óbreytt staða sé óviðunandi

Þorbjörg segir að jákvætt sé að einrómur sé meðal ríkisstjórnarinnar varðandi reglugerðir veðmálasíða en ráðherrar hafi tekið undir það að óbreytt ástand sé óviðunandi. 

„Óbreytt staða er sú allra versta fyrir alla aðila. Hún er vond fyrir innlenda aðila sem eru á markaði og ég ætla að vera alveg skýr með það, ég lít á það sem markmið íslenskra stjórnvalda að verja þá hagsmuni. Hún er mjög slæm með tilliti til lýðheilsu, með tilliti til fíknar.“

„Þetta eru í sjálfu sér sömu sjónarmiðin sem við vorum að ræða varðandi áfengið. Við vitum að þarna er mikil fíknihegðun. Þetta er sú fíkn sem fylgir mesta skömmin. Þetta virðist vera kynbundið vandamál, miklu frekar strákar og karlmenn og dæmi um að fjölskyldufeður bara bókstaflega spili frá sér heimili og fjölskyldu.“

Þorbjörg leggur til svokallaða finnska leið í þessum efnum, blandað kerfi þar sem farið er með eftirlit með starfseminni. Starfsemin verði gerð leyfisskyld með ákveðnum skilyrðum. 

„Ég er að horfa á finnsku leiðina, sem er blönduð leið. Við höldum í að þessir íslensku aðilar verði áfram á markaði. Það verði opnað með skilyrðum fyrir aðra aðila. Þar skapast forsendur og tekjur til þess að hafa raunverulegt eftirlit með þessu þannig að þetta villta vesturs ástand, við náum að tempra það aðeins.“

Leyfisgjöld séu tækifæri til þess að vera með eftirlit og úrræði. Hægt sé að loka á aðila sem ekki virði „almennar leikreglur eins og lágmarksaldur.“ Tekjur skattlagningar séu nýttar í eftirlit og forvarnir. 

#ekki #gott #hafi #lögbrot #möguleg


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262913820d/ekki-gott-ad-moguleg-logbrot-hafi-fengid-ad-malla-arum-saman-dr

📰 Aðrar fréttir

Olíuverð á niðurleið eftir tvær árásarlausar nætur í Íran
📅 26.07.2026 👁️ 0
Olíuverð á niðurleið eftir tvær árásarlausar nætur í Íran
Verð á Brent-norðursjávarolíu féll um 5,56% við opnun Asíumarkaða á mánudagsmorgun. Verð á tunnunni fór niður í $91,38. Verðið á West Texas Intermedia...
UK weather: Driest regions miss chance for rain ahead of next heatwave
📅 26.07.2026 👁️ 0
UK weather: Driest regions miss chance for rain ahead of next heatwave
Much of the UK continues to experience very dry conditions after a summer marked by low rainfall and recurring heatwaves.
Girlguiding unveils first major uniform redesign since 1990
📅 26.07.2026 👁️ 0
Girlguiding unveils first major uniform redesign since 1990
Under the new rules, members will be able to wear a top from the new range with their own trousers.
Renni­braut vélarinnar hafi virkjast á flug­brautinni - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 0
Renni­braut vélarinnar hafi virkjast á flug­brautinni - Vísir
Tugir Íslendinga, þar á meðal fjölskyldur með ung börn, voru skildir eftir á flugvellinum í Alicante á Spáni í nótt vegna bilunar sem kom upp í flugvé...
Renni­braut vélarinnar hafi virkjast á flug­hlaði - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 0
Renni­braut vélarinnar hafi virkjast á flug­hlaði - Vísir
Tugir Íslendinga, þar á meðal fjölskyldur með ung börn, voru skildir eftir á flugvellinum í Alicante á Spáni í nótt vegna bilunar sem kom upp í flugvé...
Nutu sólar og sílaveiða við Hvaleyrarvatn
📅 26.07.2026 👁️ 0
Nutu sólar og sílaveiða við Hvaleyrarvatn
Meðal þess sem gestir við Hvaleyrarvatn skemmtu sér við í dag var að halda afmælisfögnuð. Margir veiddu síli og veiðarfærin ýmist fata eða háfur og Ei...
Á fjórða hundrað þúsund þurft að yfirgefa heimili sín í Frakklandi og á Spáni
📅 26.07.2026 👁️ 1
Á fjórða hundrað þúsund þurft að yfirgefa heimili sín í Frakklandi og á Spáni
Á fjórða hundrað þúsund manns hafa nú þurft að yfirgefa heimili sín í Frakklandi og á Spáni vegna skógareldanna sem þar hafa geisað undanfarna daga.Mi...
Dagmamma frá helvíti - Skellti höfði átta mánaða barns í borð svo það fékk varanlegan heilaskaða
📅 26.07.2026 👁️ 1
Dagmamma frá helvíti - Skellti höfði átta mánaða barns í borð svo það fékk varanlegan heilaskaða
Dagmóðir í Norður Karólínufylki í Bandaríkjunum hefur verið ákærð fyrir að slá höfði barns í hennar umsjá í borð. Barnið hlaut heilaskaða eftir árásin...
Ekki gott að mögu­leg lög­brot hafi fengið að malla árum saman - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 0
Ekki gott að mögu­leg lög­brot hafi fengið að malla árum saman - Vísir
Frá árinu 2020 hefur netverslunum með áfengi fjölgað ört á Íslandi en í dag bjóða um tuttugu fyrirtæki áfengi til sölu til einstaklinga. Mikil umræða ...
Lögreglan skaut grunaðan mann til bana vegna árásarinnar í Berlín
📅 26.07.2026 👁️ 0
Lögreglan skaut grunaðan mann til bana vegna árásarinnar í Berlín
Lögreglan skaut grunaðan mann til bana vegna árásarinnar í Berlín Fréttin26. júlí 2026ErlentLeave a Comment Sendibíll ók inn í mannfjölda á meðan á hi...
Þúsundir komu saman til að minnast fórnarlambanna í Berlín
📅 26.07.2026 👁️ 0
Þúsundir komu saman til að minnast fórnarlambanna í Berlín
Tíu til fimmtán þúsund manns söfnuðust saman á Pariser Platz í miðborg Berlínar um hádegisbilið í dag til að minnast fórnarlamba voðaverkanna í Gleðig...
Andy Burnham pledges continued support for Ukraine ahead of Zelensky visit
📅 26.07.2026 👁️ 0
Andy Burnham pledges continued support for Ukraine ahead of Zelensky visit
The Ukrainian president will be Andy Burnham's first international visitor since taking office.
Viðbragðsaðilar hafa í nógu að snúast
📅 26.07.2026 👁️ 1
Viðbragðsaðilar hafa í nógu að snúast
Björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar eru búnir að hafa í nógu að snúast í kvöld við leit og björgun.„Það eru búin að vera frekar snúin og krefjan...
Kemi Badenoch tells PM not to raise taxes to fund social care
📅 26.07.2026 👁️ 1
Kemi Badenoch tells PM not to raise taxes to fund social care
In a letter to the PM, the Conservative leader offers to work with him on adult social care reform.
Halda við þekkingu á gömlu íslensku handverki
📅 26.07.2026 👁️ 1
Halda við þekkingu á gömlu íslensku handverki
Í Höfnum á Reykjanesi eru að rísa smiðja og verbúð, byggðar með fornu verklagi. Húsasmíðameistari segir nauðsynlegt að halda þekkingunni við.Sveinn En...
Einn í sjálf­heldu í Emstrum og annar fót­brotnaði á Falljökli - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
Einn í sjálf­heldu í Emstrum og annar fót­brotnaði á Falljökli - Vísir
Klukkkan tuttugu mínútur í fimm sídegis í dag barst Landhelgisæslunni tilkynning um ferðamann sem hafði fótbrotnað á Falljökli í Öræfum, að sögn Magnú...
World Matchplay darts 2026 results: Luke Littler defends title and smashes Phil Taylor's average record
📅 26.07.2026 👁️ 0
World Matchplay darts 2026 results: Luke Littler defends title and smashes Phil Taylor's average record
Luke Littler sets a new record for the tournament average and final average in a World Matchplay as he defends his title in Blackpool by beating Gerwy...
Hvetur íbúa til að tilkynna öll innbrot
📅 26.07.2026 👁️ 1
Hvetur íbúa til að tilkynna öll innbrot
Fleiri innbrot í miðborg Reykjavíkur hafa verið tilkynnt til lögreglu í júlí en vant er. Formaður íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur hvetur nágranna ti...
„Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
„Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ - Vísir
Talsverður vindur og úrkoma hefur ráðið ríkjum á Borgarfirði eystra um helgina, þar sem tónlistarhátíðin Bræðslan hefur farið fram. Veðrið setti strik...
Vilja hjálpa öðrum að halda hárinu í minningu Laufeyjar
📅 26.07.2026 👁️ 1
Vilja hjálpa öðrum að halda hárinu í minningu Laufeyjar
Vinir og fjölskylda konu sem lést úr brjóstakrabbameini fyrr á árinu vilja breyta erfiðri reynslu í von fyrir aðra. Þau safna fyrir búnaði sem dregur ...
Fall Maduro rataði inn í íslenska stjórnsýslu: Kærunefnd útlendingamála segir Venesúela stöðugt
📅 26.07.2026 👁️ 1
Fall Maduro rataði inn í íslenska stjórnsýslu: Kærunefnd útlendingamála segir Venesúela stöðugt
Handtaka Nicolás Maduro og pólitísku sviptingarnar í Venesúela hafa nú ratað formlega inn í íslenska stjórnsýslu. Kærunefnd útlendingamála segir ekker...
Mótorhjólamaður slasaðist í Vestfjarðagöngunum
📅 26.07.2026 👁️ 1
Mótorhjólamaður slasaðist í Vestfjarðagöngunum
Ökumaður á mótorhjóli slasaðist í Vestfjarðagöngunum á sjöunda tímanum í kvöld. Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Ísafirði, segir sjúkraflutningam...
Mótorhjólamaður slasaðist í Dýrafjarðargöngum
📅 26.07.2026 👁️ 1
Mótorhjólamaður slasaðist í Dýrafjarðargöngum
Ökumaður á mótorhjóli slasaðist í Dýrafjarðargöngum á sjöunda tímanum í kvöld. Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Ísafirði, segir sjúkraflutningame...
Edda Falak selur gullfallega íbúð
📅 26.07.2026 👁️ 1
Edda Falak selur gullfallega íbúð
Edda Falak selur gullfallega íbúð Edda Falak Mynd: YouTube/Skjáskot Fjölmiðlakonan fyrrverandi Edda Falak og sambýlismaður hennar, Kristján Helgi Hafl...
Berlin Pride attack suspect shot and killed during police operation
📅 26.07.2026 👁️ 1
Berlin Pride attack suspect shot and killed during police operation
Police say Abdul Ballout was shot and killed after he rushed at officers with a knife in a western borough of Berlin.
Tour de France 2026: Tadej Pogacar wins fifth Tour as Mathieu van der Poel takes stage 21
📅 26.07.2026 👁️ 1
Tour de France 2026: Tadej Pogacar wins fifth Tour as Mathieu van der Poel takes stage 21
Slovenian Tadej Pogacar wins the Tour de France for a record-equalling fifth time.
Þrettán Aalto-byggingar í Finnlandi á heimsminjaskrá UNESCO
📅 26.07.2026 👁️ 1
Þrettán Aalto-byggingar í Finnlandi á heimsminjaskrá UNESCO
Byggingarnar sem Finnska menningarsögufélagið hefur tilnefnt eru allar í Finnlandi, þar sem Aalto starfaði með eiginkonum sínum, sem einnig voru arkit...
Emma Roberts gengin í það heilaga - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
Emma Roberts gengin í það heilaga - Vísir
Dægurmiðillinn TMZ greinir frá og segir leikkonuna Juliu Roberts, frænku Emmu Roberts, hafa verið meðal gesta. Brúðurin klæddist hvítum síðum kjól, ha...
Óttast að spilafíkn aukist mikið á næstu árum
📅 26.07.2026 👁️ 1
Óttast að spilafíkn aukist mikið á næstu árum
Páll Heiðar Jónsson, sálfræðingur hjá SÁÁ sem starfar í fjárhættuspilateyminu, telur að spilafíklum eigi eftir að fjölga mikið á næstu árum. Síðustu m...
Áhrifavaldur með Alzheimer er látinn, 49 ára
📅 26.07.2026 👁️ 1
Áhrifavaldur með Alzheimer er látinn, 49 ára
Áhrifavaldur með Alzheimer er látinn, 49 ára Rebecca LunaRebecca lést í gær Mynd: TikTok Kanadíski áhrifavaldurinn Rebecca Luna, sem vakti mikla athyg...
Skúli Tómas snýr aftur til starfa
📅 26.07.2026 👁️ 1
Skúli Tómas snýr aftur til starfa
Skúli Tómas Gunnlaugsson hjartalæknir snýr aftur til starfa á Landspítalanum á næstunni, samkvæmt upplýsingum frá spítalanum. Skúli Tómas var ákærður ...
„Upp­á­haldið“ hans Epsteins mun erfa veldið - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
„Upp­á­haldið“ hans Epsteins mun erfa veldið - Vísir
Hún er upprunalega frá Belarús en kynntist Epstein þegar hún var 21 árs gömul. New York Times segir að síðan Epstein dó hafi hún reynt að lifa eðlileg...
Trump paused attacks on Iran to make space for talks, US ambassador says
📅 26.07.2026 👁️ 1
Trump paused attacks on Iran to make space for talks, US ambassador says
Neither the US nor Iran have launched attacks in the last two nights, after almost two weeks of tit-for-tat strikes risked derailing talks to permanen...
Grunaður á­rásar­maður skotinn til bana í Ber­lín - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 1
Grunaður á­rásar­maður skotinn til bana í Ber­lín - Vísir
Einn lét lífið og 29 særðust í árásinni en enginn þeirra er talinn í lífshættu þótt fjórir séu á gjörgæslu. BBC greinir frá og segir hinn grunaða hafa...
Lögregla skaut meintan árásarmann í Berlín til bana
📅 26.07.2026 👁️ 1
Lögregla skaut meintan árásarmann í Berlín til bana
Þýska lögreglan skaut til bana mann sem grunaður er um að hafa ekið á mannfjölda nálægt gleðigöngu í Berlín í gærkvöldi. Ein kona lét lífið í árásinni...
Aðstæður óvenjulegar en góð stemning á Bræðslunni
📅 26.07.2026 👁️ 1
Aðstæður óvenjulegar en góð stemning á Bræðslunni
„Auðvitað er það ekkert launungarmál að það gekk yfir óveður meðan á þessu stóð í gærkvöldi og svo sem eins á föstudagskvöldið líka. Þannig að aðstæðu...
Mótorhjólamaður lést í umferðaslysi á Tenerife
📅 26.07.2026 👁️ 1
Mótorhjólamaður lést í umferðaslysi á Tenerife
Mótorhjólamaður lést í umferðaslysi á Tenerife Teide-fjall á TenerifeMyndin tengist fréttinni ekki beint Mynd: Shutterstock Sextíu og tveggja ára móto...
Ingibjörg harðlega gagnrýnd – „Þingmenn Miðflokksins greiddu atkvæði gegn því að Íslendingar yrðu spurðir um ESB og vilja frekar spyrja Trump“
📅 26.07.2026 👁️ 2
Ingibjörg harðlega gagnrýnd – „Þingmenn Miðflokksins greiddu atkvæði gegn því að Íslendingar yrðu spurðir um ESB og vilja frekar spyrja Trump“
Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins, hefur fengið yfir sig holskeflu gagnrýni eftir að hún gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að bera ekki aðil...
Íranar heita því að svara árás á Kaspíahafi
📅 26.07.2026 👁️ 2
Íranar heita því að svara árás á Kaspíahafi
Írönsk stjórnvöld heita því að svara árás Úkraínumanna á íranskt skip á Kaspíahafi, þar sem einn skipverji var drepinn og fleiri særðust. Þau sökuðu Ú...
Fer enn huldu höfði - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 2
Fer enn huldu höfði - Vísir
Einn lét lífið, en 29 særðust í árásinni en enginn þeirra er talin í lífshættu þótt fjórir séu á gjörgæslu. Abdoul er talinn hafa verið stuðningsmaður...
Á­hrifa­valdur drepin eftir hún minntist á á­sakanir í garð eigin­mannsins - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 2
Á­hrifa­valdur drepin eftir hún minntist á á­sakanir í garð eigin­mannsins - Vísir
Hún var vinsæl á samfélagsmiðlum þar sem hún veitti fylgjendum sínum ráð varðandi uppeldi barna. Fyrir rúmum mánuði síðar fór hún fram á að eiginmaður...
Hljóðmengun eykur líkur á parkinson
📅 26.07.2026 👁️ 2
Hljóðmengun eykur líkur á parkinson
Fólk sem býr við viðvarandi hljóðmengun frá umferð er líklegra til að þróa með sér parkinsonsjúkdóm. Þetta eru niðurstöður danskrar rannsóknar, þeirra...
Aðildarviðræður við ESB þá og nú
📅 26.07.2026 👁️ 2
Aðildarviðræður við ESB þá og nú
Aðildarviðræður við ESB þá og nú Í þess­ari þriðju grein um Evr­ópu­tengsl Ís­lands eru kring­um­stæð­ur fyrstu at­rennu að­ild­ar­við­ræðna á ár­un­u...
Um­ræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 2
Um­ræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? - Vísir
Þetta sagði Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í Pallborðinu á Vísi í gær. Til umræðu var þjóðaratkvæ...
Yfirgáfu samfélög múslima og vilja nú endurflutning innflytjenda
📅 26.07.2026 👁️ 2
Yfirgáfu samfélög múslima og vilja nú endurflutning innflytjenda
Clara og Rigmor segja íslamskt félagslegt taumhald hafa breytt afstöðu þeirra til innflytjendamála – ákvörðunin um að stíga fram hefur kostað þær vini...
„Alltaf tor­tryggin gagn­vart boði um gull og græna skóga“ - Vísir
📅 26.07.2026 👁️ 2
„Alltaf tor­tryggin gagn­vart boði um gull og græna skóga“ - Vísir
Una Margrét Jónsdóttir rithöfundur greinir frá þessu á Facebook síðu sinni en slíkur svindlari setti sig í samband við hana undir dulnefninu Danielle ...
Trump með fullorðinsbleyju í viðtali 60 Minutes – „Hann hefur enga stjórn á hægðum sínum“
📅 26.07.2026 👁️ 2
Trump með fullorðinsbleyju í viðtali 60 Minutes – „Hann hefur enga stjórn á hægðum sínum“
Áhyggjur fólks af heilsu Donald Trump Bandaríkjaforseta aukast með hverjum deginum. Ekki aðeins andlegri heilsu hans sem virðist hraka með hverjum deg...
Hungarian Grand Prix result: Lando Norris wins from Max Verstappen with Kimi Antonelli third
📅 26.07.2026 👁️ 2
Hungarian Grand Prix result: Lando Norris wins from Max Verstappen with Kimi Antonelli third
Lando Norris takes his and McLaren's first victory of the year in a compelling Hungarian Grand Prix.
Sólborgir vilja reisa brottvísunarstöð úr gámaeiningum á Rockville-svæðinu
📅 26.07.2026 👁️ 2
Sólborgir vilja reisa brottvísunarstöð úr gámaeiningum á Rockville-svæðinu
Suðurnesjabær hafnaði fyrir helgi beiðni Sólborga ehf. um milligöngu vegna afnota af Rockville-svæðinu vegna brottvísunarstöðvar stjórnvalda. Leit ste...
Vill bera aðild Íslands að ESB undir Bandaríkin
📅 26.07.2026 👁️ 1
Vill bera aðild Íslands að ESB undir Bandaríkin
Vill bera aðild Íslands að ESB undir Bandaríkin Þing­mað­ur Mið­flokks­ins seg­ir „mjög mið­ur“ að ekki hafi ver­ið fund­að með Banda­ríkj­un­um um af...