Stjórn RÚV hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort Ísland taki þátt í Eurovision í Búlgaríu á næsta ári. Þetta staðfestir Stefán Jón Hafstein, stjórnarformaður RÚV.
Hann segir Eurovision „sáralítið verið rætt“ innan stjórnarinnar. Næsti stjórnarfundur verður haldinn í lok september. Stefán segir óvíst hvort þátttaka Íslands verði rædd á fundinum þar sem dagskrá fundarins liggi ekki fyrir.
„Minn skilningur er sá að það er ekki komin nein dagsetning á hvenær síðasti séns er til að láta vita um þátttöku,“ segir Stefán.
Hann bendir á að samþykkt stjórnarinnar frá í nóvember standi enn. Á fundi sem þá var haldinn var samþykkt ályktun um að beina þeim tilmælum til EBU að vísa Ísrael úr keppninni.
Fyrr í dag tilkynnti hollenska sjónvarpsstöðin AVROTROS, sem hefur séð um þátttöku í Eurovision síðustu ár, að hún ætli ekki að taka þátt í keppninni á næsta ári. Holland var ekki með í keppninni í ár. Ákvörðun um þátttöku er komin á borð NPO sem eru yfirsamtök hollenskra ríkismiðla.