Íslendingur á sextugsaldri hvarf sporlaust í Búdapest í Ungverjalandi fyrr í apríl. Vísir greindi fyrst frá hvarfi hans í gær. Sonur hans segir kvíða og svefnlausar nætur hafa einkennt undanfarnar vikur.
Maðurinn heitir Hákon Þór Elmers og er 53 ára gamall. Embætti ríkislögreglustjóra staðfestir að málið hafi verið á borði alþjóðadeildar frá því í síðustu viku og sé unnið samkvæmt almennu verklagi með lögregluyfirvöldum ytra og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Síðast sást til hans 11. apríl á flugvelli í Búdapest en hann var þá á leið til Íslands. Aron Freyr Elmers sonur Hákonar segist hafa talað við pabba sinn í gegnum FaceTime skömmu áður en að hann hafi ekki litið vel út.
Reyna að rekja farsíma
Vinur Hákonar fylgdi honum út á flugvöll og þaðan hafi flugvallarstarfsfólk átt að fylgja honum út í vél. Hákon hafi stungið starfsfólkið af og farið af flugvellinum í strætisvagni. Ekkert hefur spurst til hans síðan.
Aron segir slökkt á farsíma Hákonar en segir lögreglu nú reyna að sjá hvort hægt sé að rekja ferðir hans í gegnum símann. Hákon hafi verið á ferðalagi um Evrópu um nokkurt skeið og hafi verið í Búdapest undanfarna þrjá til fjóra mánuði.
Aron segir föður sinn hafa verið ringlaðan að undanförnu. Fjölskyldan eigi erfitt með að gera sér í hugarlund hvað hafi orðið um hann og undanfarnar tvær vikur hafa verið erfiðar.
„Erfitt. Ég er áhyggjufullur yfir því. Kvíði og svefnlausar nætur og bara tekur toll á mann.“