Eiríkur Elís metinn hæfari en allar konurnar sem sóttu um

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur lokið mati sínu á umsækjendum um tvö laus dómaraembætti við Landsrétt og skilað umsögnum sínum til stjórnvalda. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt var á vef stjórnvalda.
Annað embættanna var auglýst laust til umsóknar 27. mars síðastliðinn og tekur skipun í það gildi frá 5. október næstkomandi. Hitt embættið var auglýst 1. apríl og er skipunartími þess frá 1. september.
Í umsögnum nefndarinnar kemur fram að Eiríkur Elís Þorláksson sé talinn hæfastur umsækjenda um embættin. Þá telur nefndin að fimm umsækjendur til viðbótar séu jafnhæfir, en það eru Berglind Svavarsdóttir, Halldóra Þorsteinsdóttir, Hildur Briem, Hulda Árnadóttir og Ragnheiður Snorradóttir.
Í nefndinni sátu Ása Ólafsdóttir formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Arnfríður Einarsdóttir, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.